Innlent

Gaskútum stolið í Mosfellsbæ

Tveimur gaskútum var stolið í Mosfellsbæ í gær. Að sögn lögreglu hafa allnokkur slík mál verið tilkynnt til lögreglunnar undanfarnar vikur en gaskútum hefur verið stolið á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Eigendur gaskúta ættu því að gera ráðstafanir ef þeir mögulega geta, ekki síst þeir sem eru með fellihýsi úti við og hafa ekki fjarlægt af þeim gaskútana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×