Innlent

Sleit símtali við Neyðarlínuna áður en beðið var um hjálp

Valur Grettisson skrifar

Vaktstjóri KFC hringdi á Neyðarlínuna í gærkvöldi eftir að þrír starfsmenn brenndust við störf sín.

Einn slasaðist alvarlega og liggur á gjörgæsludeild. Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni barst neyðarverði fyrirspurn frá vaktstjóranum þar sem hann spurði hvort það væri ekki réttast að fara með mennina upp á neyðarmóttöku vegna meiðsla þeirra.

Neyðarvörður svaraði því játandi en þá sleit vaktstjórinn símtalinu.

Einn piltanna sem brenndist ók með hina tvo upp á slysadeild þar sem gert var að sárum þeirra. Aftur á móti hafði lögreglan enga vitneskju um málið fyrr en rúmlega tólf á miðnætti, eða þremur tímum síðar.

Haft var eftir Helga Vilhjálmssyni, eiganda KFC, hér á Vísi að neyðarvörður hefði sagt vaktstjóranum að það væri best að hringja í leigubíl og senda mennina á slysadeild.

Dagný Halldórsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segist ekki kannast við það.

Hún segir innhringjandann hafa sagst vera með fyrirspurn um það hvort ekki væri best að fara á neyðarmóttökuna með brunasár af völdum heits vatns.

Neyðarvörðurinn tók undir það og símtalinu lauk. Þar af leiðandi var tilvikið ekki tilkynnt til lögreglu og sjúkrabíll því ekki sendur á vettvang.

Í tilkynningu frá Helga Vilhjálmssyni, eiganda KFC, kemur fram að ekki hafi verið fylgt starfsreglum KFC við þrif á pottinum. Hann reyndist fullur af vatni, auk þess sem hann var settur í gang og honum lokað.

Við það sauð vatnið og þegar starfsmaðurinn opnaði pottinn spýttist vatnið yfir starfsmennina.

Hér fyrir neðan má svo lesa tilkynningu frá Helga.




Tengdar fréttir

Alvarlegur misbrestur varð á að tilkynna um vinnuslys

Alvarlegur misbrestur virðist hafa orðið á að tilkynna réttum aðilum um alvarlegt vinnuslys sem varð á kjúklingabitastað KFC í Kópavogi í gærkvöldi. Þrír starfsmenn staðarins brenndust og liggur einn þeirra á gjörgæsludeild.

Vinnuslys: Brenndist illa á KFC

Ungur starfsmaður á kjúklingastaðnum KFC í Kópavogi liggur á gjörgæsludeild eftir að heitavatnskútur sprakk þar skömmu eftir lokun í gærkvöldi og hann brenndist í andliti, á brjósti og höndum. Hann verður líklega úrskrifaður á aðra deild í dag, að sögn læknis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×