Innlent

HB Grandi á Vopnafirði fagnar 10.000 tonnum af síld og makríl

Starfsfólk í frystihúsi HB Granda á Vopnafirði fagnaði því í vikunni að þar er búið að frysta tíu þúsund tonn af síld og makríl til manneldis í sumar, sem er meira en nokkru sinni fyrr.

Vinnslan í þessu ný endurbyggða frystihúsi hefur gengið vel, nema hvað þriðja uppsjávartegundin, kolmunni, hefur valdið nokkrum vandræðum í vinnslunni, því hann truflar flokkun á síldinni.

Í tilefni þesa áfanga var starfsfólki boðið upp á stóreflis brauðtertu í kaffitímanum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×