Innlent

Leit lögreglu bar ekki árangur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Leit að karlmanni sem grunaður er um að hafa sýnt barni ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugardalshverfinu í Reykjavík var hætt þegar Vísir hafði samband við lögreglu laust eftir klukkan átta í kvöld. Hann hafði þá ekki fundist, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Sjónarvottur sagði við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis að hið minnsta fjórir lögreglubílar væru á staðnum til að leita að manninum. Vísir hefur ekki fengið upplýsingar um það frá lögreglu í hverju meint brot mannsins fólust.




Tengdar fréttir

Meints barnaníðings leitað

Karlmanns, sem grunaður er um að hafa sýnt barni ósæmilega kynferðislega hegðun, er leitað þessa stundina í Laugardalshverfinu í Reykjavik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×