Kristján Möller: Ákveðið á fundi með Steingrími og Jóhönnu Erla Hlynsdóttir skrifar 2. september 2010 15:21 Kristján Möller segist ekki vita hvort leyfisferlið sé komið það langt að ekki sé hægt að snúa við.
Kristján Möller, fyrrverandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, segir að ákvörðun um að veita Flugmálastjórn heimild til að hefja undirbúning á skráningu loftfara fyrir hollenska fyrirtækið ECA Program Limited á Keflavíkurflugvelli hafi verið tekin eftir spjall hans við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formann vinstri grænna, eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudag. Kristján tekur fram að málið hafi ekki verið á dagskrá ríkisstjórnarinner heldur var ákvörðin tekin eftir þann fund. „Þetta var ekki ákveðið í samráði við ráðherra VG. Það er rétt. Þetta var ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar" segir hann. Þegar blaðamaður bendir Kristjáni á að innan vinstri grænna hefur verið mikil andstaða við að ECA fái umrætt leyfi segir hann: „Ekki miðað við þetta," og bendir á að ákvörðunin hafi verið tekin á fundi hans með Steingrími sjálfum. Nokkuð er síðan umræða um leyfi til ECA fór í gang og hafa aðstoðarmenn innan ráðuneytanna unnið að málinu síðan. „Undirbúningsvinnu var nú lokið og niðurstaðan var að sameiginlega þyrfti að taka næsta skref," segir hann. Því hafi ráðuneytið ritað Flugmálastjórn bréf þar sem heimilað var að hefja undirbúning á skráningu loftfara ECA og henni falið að afla svara við ákveðnum spurningum sem ráðuneytið vill fá svör við. Þar á meðal eru spurningar um hvaða áhrif mögulegar æfingar hafa á losunarkvóta Íslendinga. Spurður hvort hægt sé að stíga skref til baka í ferlinu þar sem það sé komið á þetta stig segir Kristján: „Nú veit ég ekki. Það var bara ákveðið að Flugmálastjórn færi í þessar viðræður." Í gær átti Kristján síðan aftur fund með Jóhönnu þar sem hann segir að hún hafi spurt hvort hann væri búin að senda Flugmálastjórn bréf þar sem vilyrðið væri veitt. „Síðan var það á fundi með forsætisráðherra í gær þar sem hún hvatti mig til að senda bréfið ef það væri ekki þegar sent. Hún vildi minna mig á þetta," segir hann. Stefán Pálsson, formaður Félags hernaðarandstæðinga, segir á Facebook-síðu sinni að hann eigi „...ekki orð yfir fáránlegu hefndarbroti Kristjáns Möller. Starfsleyfið til ECA er brot á stjórnarsáttmála og verður ekki látið viðgangast." Þegar Kristján er spurður hvort það sé rétt að þetta hafi verið hefndaraðgerð þar sem ljóst hafi verið að hann var að kveðja ráðherradóm segir hann hvumsa: „Þetta er svo vitlaust að það er ekki svaravert. Þegar maður er spurður af forsætisráðherra hvort bréfið sé ekki örugglega farið þá segir það allt sem segja þarf."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira