Allt að hundrað gætu sloppið við fangelsisvist 14. apríl 2010 14:19 Á árunum 2012 og 2013 má búast við því að um 100 dómar fyrnist. Þetta kemur fram í svari Rögnu við fyrirspurn þingmanns Framsóknarflokksins um plássleysi í fangelsum og fésektir. Mynd/Anton Brink
Fyrirsjáanlegt er að verði ekkert að gert til að fjölga fangarýmum í landinu munu dómar fyrnast vegna plássleysis, að mati dómsmála- og mannréttindaráðherra. 14 dómar kunna að fyrnast í ár og á næsta ári sökum plássleysis. Á árunum 2012 og 2013 má búast við því að um 100 dómar fyrnist. Þetta kemur fram í svari Rögnu Árnadóttur, dómsmála- og mannréttindaráðherra, við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, um plássleysi í fangelsum og fésektir. Fram kemur í svarinu að á árum 2000 og til 15. mars 2010 létust 20 dómþolar áður en til afplánunar kom. Frá árinu 2000 og til loka árs 2009 fyrndust fimm dómar. Engir dómar fyrndust á árunum 2003 til 2007 en þrír á árunum 2008 til 2009. Nokkrum erfiðleikum er bundið að meta í hvaða mæli dómar munu fyrnast enda spila þar inn í þættir á borð við fjölda gæsluvarðhaldsúrskurða á næstu missirum, að fram kemur í svari Rögnu. „Við þessu þarf að bregðast. Samþykkt hefur verið í ríkisstjórn að ráðast í byggingu nýs fangelsis með a.m.k. 40 fangarýmum að því tilskildu að fjármögnun fáist. Er það mál í vinnslu í ráðuneytinu. Einnig er í skoðun í ráðuneytinu hvernig unnt er að beita öðrum aðferðum við afplánun refsinga en fangelsisvist, svo sem rafrænu eftirliti með afplánunarföngum. Þá er rétt að taka fram að tekið hefur verið í notkun opið fangelsi að Bitru en þar má vista 20 fanga," segir ráðherra.Skulda 1,1 milljarð í sektir Í svari Rögnu kemur fram að tekin hafi verið ákvörðun um að 1.799 einstaklingar skuli afplána vararefsingu vegna ógreiddra fésekta. Þessir einstaklingar skulda rúmlega 1,1 milljarð í sektir og og þurfa ella að afplána samtals 29.995 daga í fangelsi. Með öðrum orðum eru 1.799 einstaklingar á biðlista eftir að afplána vararefsingu vegna ógreiddra fésekta. „Þessi mál eru í fyrningarhættu, m.a. vegna þess að ekki hefur verið unnt að boða þessa einstaklinga í afplánun. Gerður er sá fyrirvari við heildarfjárhæð sektanna að 20 einstaklingar sem skulda u.þ.b. helminginn af heildarupphæðinni munu líklega afplána sektina með samfélagsþjónustu. Þegar fangelsi að Bitru tekur til starfa í næsta mánuði er gert ráð fyrir að 5 rými verði nýtt til afplánunar á vararefsingum."Ríkið hefur afskrifað um 132 milljónir Ríkið hefur afskrifað tæplega 132 milljónir í sektir sem hafa vararefsingu á bak við sig frá árinu 2000 til loka árs 2009. Í svari Rögnu segir að erfitt sé að áætla hversu mikið hlutfall af þessari heildarfjárhæð hefði verið unnt að innheimta ef fjöldi afplánunarrýma hefði verið nægilegur til að boða alla dómþola til afplánunar vararefsingar. Reynslan hafi sýnt að fjölmargir greiði sektir þegar þeir standi frammi fyrir því að þurfa að afplána refsingu í fangelsi. „Minnt skal á það sem áður er fram komið um að nálægt helmingur af þeim rúmlega milljarði sem nú er útistandandi hjá einstaklingum, sem ákveðið hefur verið að skuli afplána vararefsingu fésekta, stafar frá tiltölulega fáum einstaklingum, sem væntanlega munu taka refsingu út með samfélagsþjónustu. Líklegt virðist að verulegur hluti af hinum helmingnum gæti innheimst ef afplánunarrými verða til staðar. Þess ber að geta að einstaklingar sem ákveðið hefur verið að afplána eigi vararefsingu geta hvenær sem er komist hjá því að sitja inni með því að greiða sektina eða sitja skemur inni með því að greiða inn á sektina."
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira