Innlent

Smyglaði loftbyssu til Íslands og var rekinn úr skólanum

Valur Grettisson skrifar
Pilturinn komst inn í landið með loftbyssu. Myndin er úr safni.
Pilturinn komst inn í landið með loftbyssu. Myndin er úr safni.

Skoskur menntaskólapiltur er heldur betur í vandræðum eftir að hann flaug til Íslands vopnaður loftbyssu.

Pilturinn fór í gegnum flughöfn í Glasgow, þaðan til Keflavíkur. Vopnið virðist hinsvegar ekki hafa fundist fyrr en hann ætlaði heim aftur.

Það var tollgæslan sem fann byssuna. Ekki kemur fram hvort vopnið hafi fundist á Íslandi eða í Skotlandi.

Samkvæmt skosku fréttasíðunni The Courier þá var stjórnendum skólans langt því frá skemmt yfir athæfinu.

Skólayfirvöld rannsökuðu málið og sú ákvörðun tekin í kjölfarið að reka piltinn úr skólanum fyrir vopnasmyglið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×