Athugasemd frá Björgólfi Thor Björgólfssyni 15. apríl 2010 14:31 Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björgólfsson hefur sent frá sér athugasemd vegna fréttar Fréttablaðsins „Hundrað milljarða lán mánuði fyrir hrun“ sem birtist í blaðinu í dag. Yfirlýsingin er eftirfarandi: Öllu er snúið á hvolf í frétt Fréttablaðsins í gær, þar sem fullyrt er í fyrirsögn að „Björgólfsfeðgar [hafi fengið] hundrað milljarða lán mánuði fyrir hrunið". Í tveimur tilvikum er því haldið fram að tekið hafi verið lán, þegar svo var ekki. Í öðru tilvikinu var keypt krafa af Landsbankanum og í hinu fékk Björgólfur Thor greidda upp kröfu sem hann átti og lagði það fé inn í Straum til að styrkja bankann. Til viðbótar er lán vegna Actavis dregið inn í umfjöllunina, en það lán er í skilum og verður greitt upp að fullu. Fréttablaðið heldur því fram að bankastjórn Landsbankans hafi samþykkt hátt lán til eignarhaldsfélagsins Samsonar í september 2008. Margoft hefur verið bent á, að ekki var um nýja lánveitingu að ræða. Landsbankinn átti háa kröfu á Eimskip vegna láns til móðurfélags ferðaþjónustufyrirtækisins XL Leisure Group. Samson keypti þá kröfu í viðleitni sinni að styðja við rekstur bankans. Hér er því um það að ræða að eigendur bankans leggja fram eignir til að styðja við bankann á erfiðum tímum, en ekki nýja lánveitingu eins og gefið er í skyn. Síðar gengu þessi kaup til baka og Landsbankinn því eins settur og fyrir kaupin. Þá er því haldið fram að Björgólfur Thor hafi fengið lán frá Straumi í desember 2008. Þetta er alrangt. Hið rétta er að Björgólfur Thor fékk greitt til baka lán sem hann hafði veitt Novator One, sjóði í eigu Straums. Þetta fé lagði hann strax aftur til bankans, til að styrkja eiginfjárgrunn hans. Ljóst er að það fé er að mestu glatað. Actavis lán verður gert upp að fullu Því hefur verið haldið mjög á lofti og Fréttablaðið gerir það einnig í umfjöllun sinni, að lán til Björgólfs Thors vegna Actavis hafi verið tekið örfáum dögum fyrir fall Landsbankans. Staðreyndin er hins vegar sú, að dregið var á lánið í áföngum frá apríl fram í september 2008, eða sex mánuðum áður en bankakerfið hrundi. Lánið var nauðsynlegt til að tryggja áframhaldandi rekstur Actavis, en bæði Björgólfur Thor og Landsbankinn höfðu mikla hagsmuni af að svo yrði. Fyrir láninu voru því fullkomlega eðlilegar viðskiptalegar forsendur. Tryggingar fyrir láninu voru traustar, m.a. veð í Actavis. Lánið er í skilum og verður gert upp að fullu. Vegna umfjöllunar um lánamál Björgólfs Thors Björgólfssonar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vinnur hann nú að samantekt um þau mál sem hann hyggst birta opinberlega innan tíðar. Hann var ekki kallaður fyrir rannsóknarnefndina og fékk ekki tækifæri til að svara fyrir sig eða gera grein fyrir sínum málum þar. Björgólfur Thor vinnur nú að uppgjöri skulda sinna og mun gera betri grein fyrir því síðar. Eins og fram kom í grein hans í Fréttablaðinu á miðvikudag er ljóst að þótt miklar eignir hans renni strax til lánardrottna muni hann jafnframt starfa í þeirra þágu um ókomin ár, þar til hann hefur að fullu gert upp við þá.
Tengdar fréttir Hundrað milljarða lán mánuði fyrir hrunið Björgólfsfeðgar keyrðu viðskiptaveldi sitt áfram á lánveitingum frá Landsbankanum. Fall annars þeirra hefði sett tvo banka á hliðina, að mati dansks bankasérfræðings. 15. apríl 2010 03:00 Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Fleiri fréttir „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Sjá meira
Hundrað milljarða lán mánuði fyrir hrunið Björgólfsfeðgar keyrðu viðskiptaveldi sitt áfram á lánveitingum frá Landsbankanum. Fall annars þeirra hefði sett tvo banka á hliðina, að mati dansks bankasérfræðings. 15. apríl 2010 03:00