Vilja fá féð til ríkisskólanna 10. september 2010 04:00 Katrín Jakobsdóttir
Stúdentaráð Háskóla Íslands gagnrýnir stjórnvöld harðlega í nýrri skýrslu um fyrirhugaðan niðurskurð á fjárlögum til skólans. Í skýrslunni eru stjórnvöld sögð ekki hafa leitað allra leiða til að koma í veg fyrir boðaðan niðurskurð sem verður samtals fimmtán til 25 prósent næstu þrjú árin. Fyrir liggur að niðurskurður til HÍ verður hið minnsta 7,5 prósent á fjárlögum næsta árs eða 673 milljónir króna. Í dag eru starfræktir sjö háskólar. Fjórir skólar teljast hreinar ríkisstofnanir en allir skólarnir eru engu að síður fjármagnaðir að mestu leyti með framlögum frá ríkinu. Í skýrslunni segir að það hafi verið stefna stjórnvalda að fjármagna kennslu í einkareknum háskólum til jafns við kennslu ríkisháskólanna með þeim hætti að greiða sömu upphæð með hverjum nemanda sem hefur nám á háskólastigi. Þetta er ótækt að mati skýrsluhöfunda. „Á meðan sömu fjárhæðir eru greiddar úr ríkiskassanum fyrir nemendur í einkaskólum jafnt sem ríkisreknum skólum hlýtur eðlileg forgangsröðun að hafa bjagast verulega," segir í niðurstöðukafla skýrslunnar. Eins er þar bent á að þessi hugsun sé ólík því sem tíðkast á Norðurlöndunum þar sem dregið er úr framlögum til einkarekinna skóla sem nemur skólagjöldunum sem stúdentum er gert að greiða. „Taka verður fullt tillit til mismunandi rekstrarforms menntastofnana ríkisins og þar með ábyrgð einkarekinna skóla á sínu eigin rekstraröryggi," segir í skýrslunni. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir þessa framsetningu einföldun. Kennsluframlagið sé kannski það sama en rannsóknaframlag og húsnæðis-kostnaður sé mjög breytilegt á milli skólanna. Þetta þurfi að hafa hugfast. „Þetta er ekki ein stærð og það verður að horfa á reksturinn í samhengi." Spurð um aðferðafræði Norður-landanna, eins og tíðkast meðal annars í Noregi, að draga skólagjöld frá ríkisframlaginu segir Katrín að það sé eitt af því sem sé til skoðunar í ráðuneytinu. „Mér finnst full ástæða til að skoða þetta og hef viðrað þær hugmyndir að það eigi að skoða hvernig við getum haft sama umhverfi óháð skóla." Hvað niðurskurðinn varðar minnir Katrín á að verja eigi starfsemi opinberu háskólanna með því að stofna samstarfsnet þeirra með hugsanlega sameiningu í huga. „Við vonum að þetta verði síðan síðasta erfiða árið í niðurskurði. Það liggur fyrir að þetta mun taka hrikalega á." Engin ákvörðun hefur verið tekin í ráðuneytinu um bón frá háskólaráði um hækkun skrásetningargjalda úr 45 þúsund krónum í 65 þúsund krónur. svavar@frettabladid.isÍ
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira