Innlent

Fleiri flytja frá Íslandi en til

Fólksfjöldi á Íslandi breyttist lítið á öðrum fjórðungi ársins. Í lok júní bjuggu 317.900 manns á landinu, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þar af voru 21.100 erlendir ríkisborgarar.

Um 1.200 börn fæddust á fyrstu þremur mánuðum ársins, en 530 einstaklingar létust. Um 710 fleiri fluttu frá landinu en til. Meirihlutinn voru einstaklingar með erlent ríkisfang, en um 160 fleiri Íslendingar fluttu frá landinu en til, flestir til Noregs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×