Innlent

Ræðir við borgarbúa í sundskýlunni

Jón Gnarr.
Jón Gnarr. Mynd/Valgarður Gíslason
Jón Gnarr, borgarstjóri, mun fara vítt og breitt um borgina á Menningarnótt á morgun. Í hádeginu ræsir hann til að mynda skemmtiskokkið í Lækjargötu og klukkan þrjú hyggst hann afhjúpa menningarskilti með upplýsingum um bæinn Klambra á Klambratúni. Klukkustund síðar verður hann í Sundhöll Reykjavíkur þar sem hann mun eiga „pottaspjall" við gesti sundlaugarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×