Almennir notendur bera gjaldskrárhækkun OR einir Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 28. ágúst 2010 11:58 Þuríður Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, gagnrýnir að almennir notendur beri gjaldskrárhækkunina einir. Mynd/ Pjetur.
Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna gagnrýnir að almennir notendur beri gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur einir, erfiðleikar Orkuveitunnar stafi ekki af þjónustu við þá. Orkuveitan hækkaði gjaldskrá sína um allt að 40% í gær. Tekin var ákvörðun um hækkunina á stjórnarfundi Orkuveitunnar í gær, en Orkuveitan hefði að óbreyttu ekki getað staðið undir endurgreiðslu lána. Rafmagnsverð hækkar um 11 prósent, verð á heitu vatni um 30 prósent og gjald fyrir dreifingu rafmagns um heil 40 prósent. Hækkunin tekur gildi 1. október. Fyrir venjulega fjögurra manna fjölskyldu í fjölbýli er algengt að rafmagnsreikningur sé nú um 8.800 krónur á mánuði. Miðað við gjaldskrárhækkunina mun reikningur fjölskyldunnar nú hækka um 2.400 krónur, eða tæp 30 prósent. Í skýringum sem Orkuveita Reykjavíkur hefur látið fjölmiðlum í té er talið að heimilisútgjöld viðskiptavina Orkuveitunnar muni að jafnaði hækka um 0,7 prósent, en að teknu tilliti til markaðshlutdeildar fyrirtækisins munu verðbólguáhrifin vegna þessa vera um 0,4 prósent með tilheyrandi hækkun verðtryggðra lána. Auk gjaldskrárhækkunarinnar mun Orkuveitan bregðast við skuldavanda sínum með eignasölu og frekari hagræðingu í rekstri, en meðal annars verður efsta hæð Orkuveituhússins rýmd og hún leigð út. Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í stjórn Orkuveitunnar gagnrýna þessa hækkun. Sjálfstæðismenn segja frekari hagræðingu mögulega og að hækkunin hefði átt að koma fram í áföngum. Vinstri grænir vilja endurskoða raforkusamninga við stóriðju með það að markmiði að auka tekjur Orkuveitunnar. Þuríður Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, tekur undir það sjónarmið og segir hækkunina sláandi.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Sjá meira