Stöðvuðu útflutning á sjö veikum hrossum 28. maí 2010 03:30 Dýralæknar mæla með því að veik hross séu höfð sem mest úti ef veður er gott og þau eru hitalaus.
Frá því að vart varð við smitandi hósta í hrossum í byrjun apríl hafa verið flutt út til Evrópu 59 hross í þeim mánuði og 57 hross í maí. 5. maí fóru ellefu hross til Mið-Evrópu, en 8. maí fóru 46 hestar til Norðurlandanna. Sjö hestar voru teknir úr þeim hópi við útflutningsskoðun vegna gruns um sýkingu. Þetta segir Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarumdæmis. „Við höfum rætt við útflytjendurna eftir að hrossin fóru út og spurst fyrir um hvort þeir hafi frétt af veikum hestum, sem farið höfðu héðan og í ljós hefur komið að vitað er um eina hryssu sem fór til Belgíu, er virtist hafa veikst eftir að hún kom út. Íslenskum hrossum er oft haldið sér eftir að þau koma út, vegna smithættu þeirra í nýju umhverfi, og það hafði verið gert við þessa hryssu. Hún er á góðum batavegi og hefur ekki smitað önnur hross. Spurður um það sem fram kom í Fréttablaðinu í fyrradag að útflutt hross hefði smitað hross á búgarði í Þýskalandi af hóstanum kveðst Gunnar Örn hafa kynnt sér málið í kjölfar fréttarinnar og rætt við umráðamann hestsins. „Um var að ræða veturgamalt trippi sem hefur ekki fengið nein einkenni veikinnar, en virðist vera dauft. Við hliðina á því var óbólusettur þýskur hestur, sem heyrir til undantekninga því þeir eru yfirleitt allir bólusettir við öllum hugsanlegum sjúkdómum. Viku eftir að trippið kom veikist hesturinn af hósta. Af hverju vita menn ekki, né heldur hvort það er frá þessu nýinnflutta trippi komið. Það verður aldrei sannað. Aðrir hestar á búgarðinum hafa ekki veikst.“ Spurður um grunsemdir þess efnis að folöld séu að fæðast veik, eins og fram hafa komið í Fréttablaðinu, segir Gunnar Örn að þekkt sé að þegar móðir taki veiki myndi hún mótefni sem berst yfir til folaldsins. Það eigi því að vera varið af mótefni móðurinnar í allt að sex vikur. „Til öryggis fékk ég að vita hvaðan folöldin væru sem grunur léki á að hefðu fæðst veik og hringdi í viðkomandi eigendur. Ég get alls ekki sagt að þau einkenni sem þessi folöld sýna bendi til þess að þarna sé um sama sjúkdóm að ræða og við erum að berjast við, sem betur fer.“ Spurður um hvort hugsanlegt sé að hross séu að endursmitast af hóstanum segir Gunnar Örn að þar sem bakteríusýking fylgi í kjölfar veirusýkingarinnar geti hún endursmitað hrossin ef þau verða fyrir síendurteknu smiti og einnig geti hrossunum slegið niður ef brúkun þeirra hefst áður en þau hafa náð fullum bata. jss@frettabladid.is
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Vörubifreið ekið á vegfarandann Innlent Fleiri fréttir Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Sjá meira