Liður í hagræðingu 17. desember 2010 05:00 ÖssurSkarphéðinsson
Framlögum á fjárlögum sem ætluð eru til varnarmála hefur nú verið deilt milli utanríkisráðuneytisins og undirstofnana þeirra ráðuneyta sem munu sameinast í nýju innanríkisráðuneyti. Í fjárlögum ársins 2011, sem samþykkt voru á Alþingi í gær, renna 862,7 milljónir króna til varnarmála, um 100 milljónum krónum minna en í ár. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði við atkvæðagreiðslu á Alþingi í gær að þær breytingar sem þar voru gerðar þegar framlög voru færð frá Varnarmálastofnun til annarra stofnana væru í rökréttu framhaldi af samþykkt Alþingis í júní. Þá samþykkti Alþingi að leggja niður Varnarmálastofnun. „Hér er verið að ljúka þeim breytingum, og þetta er liður í því sparnaðar- og hagræðingarátaki sem þegar hefur fært skattborgunum 500 milljónir án þess að með nokkru móti sé framkvæmd alþjóðlegra skuldbindinga Íslands veikt,“ sagði Össur. Varnarmálastofnun tók til starfa 1. júní 2008. Hún fékk 533,8 milljónir af fjárlögum þess árs. Árið 2009 fékk hún 1.227 milljónir á fjárlögum. Á þessum árum var stofnunin rekin fyrir mun minna fé, samtals um 400 milljónum undir fjárheimildum. Ríkisstjórnin ákvað að leggja stofnunina niður í desember í fyrra og var það lögfest í júní síðastliðnum. Árið 2010 fékk Varnarmálastofnun 963 milljónir króna á fjárlögum og fær 862,7 á næsta ári. Nánast allur sá sparnaður og hagræði sem utanríkisráðherra vísaði til náðist áður en ákveðið var að leggja stofnunina niður. brjann@frettabladid.is BjarniBenediktsson
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira