Hlustuðu á óraunhæfar hugmyndir 17. desember 2010 05:00 Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Fjármálaráðuneytið vísar á bug vangaveltum um að komið hafi til greina að semja um lausn Icesave með því að kröfuhafar Landsbankans tækju við þrotabúi hans og greiddu Hollendingum og Bretum Icesave-skuldina. Morgunblaðið sagði frá því í gær að komið hefði til greina að leysa Icesave-málið með fyrrgreindum hætti. „Við blasir að óvarðir kröfuhafar Landsbankans voru aldrei í neinni samningsaðstöðu,“ segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Hún áréttar að ekkert hafi komið fram sem styðji fullyrðingar um að breskum eða hollenskum stjórnvöldum hafi hugnast hugmyndir kröfuhafanna. „Í raun er þarna um að ræða hugmyndir alþjóðlegra fjármálastofnana sem sjá fram á að fá lítið sem ekkert í kröfur sínar. Þær hafa sumar verið með hótanir um málaferli á grundvelli þess að neyðarlögin, sem hér voru sett til að vernda almenna innstæðueigendur og gerðu kröfur þeirra að forgangskröfum, hafi verið ólögleg.” Hún segir slíkar hótanir léttvægari eftir ályktun ESA í vikunni um að lögin hafi verið á góðum grunni reist. Hún segir hins vegar rétt að stjórnvöld hafi fundað með fulltrúum ákveðinna hópa kröfuhafa í þrotabú bankans og að hlustað hafi verið á hugmyndir þeirra. - óká
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Hitnar undir feldi Péturs Innlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fleiri fréttir Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira