Óánægja með veggjöld hjá sunnlenskum sveitarfélögum 17. desember 2010 09:52 Til stendur að taka upp veggjöld á Suðurlandsvegi og fleiri leiðum í nágrenni Reykjavíkur Mynd: Anton Brink
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga líta svo á að ef veggjöld verða tekin upp án þess að eldsneytisskattar verði lækkaðir á móti sé ljóst að um hreina tvísköttun verði að ræða. Stjórn samtakanna hefur óskað eftir fundi með Ögmundi Jónassyni samgöngumálaráðherra vegna upptöku veggjalda á Suðurlandsvegi og fleiri leiðum í nágrenni Reykjavíkur. Í tilkynningu sem samtökin senda frá sér segir að á síðasta ári hafi meðaltalsumferð um Suðurlandsveg á milli Selfoss og Reykjavíkur um 8000 bílar á sólarhring. „Áætla má að eldsneytisskattar af þessari umferð hafi numið um einum og hálfum milljarði króna og þá er ekki tekið tillit til annarra tekna af umferðinni s.s. bifreiðasköttum og vörugjöldum. Ef veggjöld verða lögð á samkvæmt fyrrgreindum fréttum nemur sú upphæð um einum milljarði króna á ári vegna umferðar um Suðurlandsveg. Samkvæmt áætlun Vegagerðarinnar kostar breikkun Suðurlandsvegar, sem framkvæmdir eru hafnar við, um 16 milljörðum króna. Miðað við ofangreindar forsendur þá greiðist kostnaður við verkið upp á innan við 10 árum að teknu tilliti til 3.5% ávöxtunar. Ef veggjöld verða tekin upp án þess að eldisneytisskattar verði lækkaðir á móti er ljóst að um hreina tvísköttun verður að ræða," segir í tilkynningu. Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hvetur yfirvöld samgöngumála til þess að hafa samráð við sunnlensk sveitarfélög um þessar auknu álögur á íbúa Suðurlands með tilkomu vegtolla á Suðurlandsvegi og að fulls jafnræðis verði gætt á milli íbúa landsins hver sem niðurstaðan verður. Í því sambandi bendir stjórn SASS á að nú greiða Vestmannaeyingar ígildi hárra veggjalda á milli Eyja og Landeyjahafnar sem hvergi eiga sér hliðstæðu í þjóðvegakerfinu. Nauðsynlegt er að taka þau mál til endurskoðunar, að mati stjórnar samtakanna.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira