Forysta flokka hlynntari ESB en hún lætur uppi 17. desember 2010 06:00 Baldur Þórhallsson segir áhugavert hversu mjög Íslendingar fylgja ESB að máli á alþjóðavettvangi en ekki Bandaríkjunum, miðað við skjöl bandaríska sendiráðsins. Hann bendir á að Bandaríkjamenn virðist hlynntir nánara samstarfi Íslands og ESB.
Á hvað í íslensku Evrópu-umræðunni varpa skjöl Wikileaks helst ljósi? „Það er athyglisvert hversu vel bandaríska sendiráðið fylgist með íslensku Evrópu-umræðunni og er vel inni í henni og íslenskum stjórnmálum almennt. Ég efast um að nokkuð sendiráð í Reykjavík vinni vinnuna sína jafn vel," segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði og varaþingmaður Samfylkingar. Baldur hefur sérhæft sig í utanríkistengslum Íslands og sér í lagi tengslum við Evrópu. Hann var beðinn að meta hvort og þá hverju þau skjöl Wikileaks sem greint var frá í blaðinu á laugardag bæta við það sem áður var vitað um þessi mál. „Mér finnst áhugavert hvað skjölin segja um afstöðu þáverandi varaformanns og núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins til aðildar að Evrópusambandinu. Það vita allir um afstöðu Þorgerðar Katrínar. En það sem þau segja um Bjarna Benediktsson formann gengur þvert á það sem hann talar um Evrópumálin núna. Ég held raunar að sendiráðið fari mjög nærri lagi um hans raunverulegu afstöðu," segir Baldur. Í skjölum Wikileaks er Bjarni á einum stað sagður mikill stuðningsmaður aðildar Íslands að ESB. Umfjöllun blaðsins á laugardag „Það er um leið mjög athyglisvert sem sagt er um vilja innan VG og vilja innan þess flokks að taka upp evrópusinnaðri stefnu. Þarna koma sjónarmið Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns VG, fram. Þannig að þetta segir okkur kannski það að forystusveit þessara flokka, VG og Sjálfstæðisflokks, sé evrópusinnaðri en menn vilja vera láta," segir Baldur og vísar til þess að Katrín er sögð á einum stað telja að VG breyti um stefnu og gerist Evrópusinnaðri. Hún hafi skilning á því. Þá segist Baldur sammála því mati sendiráðsins að Framsóknarflokkurinn hafi náð að auka fylgi sitt í aðdraganda síðustu kosninga með jákvæðri stefnu gagnvart Evrópusambandsaðild. „Þetta á sérstaklega við á höfuðborgarsvæðinu og er athyglisvert í ljósi þess hvernig Framsóknarflokkurinn hefur nálgast Evrópumálin eftir kosningar. Fyrir kosningar töluðu framsóknarmenn fyrir því að sækja um aðild að ESB og sjá hvað kæmi út úr samningi og bera undir þjóðina. Þegar kom hins vegar að atkvæðagreiðslu á þingi um aðildarumsókn greiddi 2/3 þingmanna flokksins atkvæði gegn því að sækja um aðild og einungis þriðjungur með. Síðan hafa nokkrir þingmenn flokksins verið einna ákafastir í því að draga umsóknina til baka, sem gengur þvert á formlega stefnu flokksins eins og hún var mörkuð fyrir kosningar. Ég held að það hafi kannski gleymst að framsóknarmenn töluðu mjög hlýlega til ESB í aðdraganda kosninga," segir prófessorinn. Baldur telur vangaveltur sendiráðsins verðugar, um hugsanlegan klofning innan flokkanna sem eru tvístígandi um Evrópusamvinnuna: „Og hvernig það geta komið fram nýir flokkar ef það verður látið sverfa til stáls innan þessara flokka um Evrópumálin." „Mér finnst líka athyglisvert að það kemur fram í samtölum sendiráðsmanna við íslenska embættismenn hve íslensk stjórnvöld taka afstöðu til alþjóðamála á grundvelli stefnu ríkja Evrópusambandsins. Það kemur skýrt fram í nokkrum dæmum að Íslendingar eru ekkert að eltast við Bandaríkin, heldur eru þeir að fylgja Evrópuríkjunum eftir og ESB," segir hann. Baldur vísar hér til þess að greint var frá dæmum á laugardag þar sem íslenskir embættismenn segja beinlínis að Ísland fylgi yfirleitt fordæmi ESB, þegar alþjóðlegar yfirlýsingar eru gefnar út. Prófessorinn segir að síðast en ekki síst virðist sendiráðsmönnunum Bandaríkjamanna finnast það vera mjög eðlilegt skref að Ísland tengist Evrópu nánari böndum bæði efnahagslega og pólitískt. „Þeir hafa í raun ekkert við það að athuga nema síður sé. Þetta er í takt við stefnu Bandaríkjamanna gagnvart öðrum ríkjum Evrópu, í sögulegu samhengi, en bandarísk stjórnvöld hafa alltaf verið mjög fylgjandi þátttöku ríkja í Evrópusamrunanum," segir Baldur og vísar þar meðal annars til þeirra orða Carol van Voorst sendiherra að því ætti að koma því „á hreint að BNA telji ekki að sér vegið með íslensku ákalli um nánari öryggistengsl við Evrópu. Raunar myndum við taka því vel ef deila mætti byrðunum". Þetta sagði hún í mars 2006, í samhengi við brottför bandaríska hersins.klemens@frettabladid.is
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Fleiri fréttir Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Sjá meira