Vinstri grænir töpuðu 40 milljónum 17. desember 2010 17:34 Forystumenn Vinstri grænna, Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir. Mynd/GVA
Samkvæmt ársreikningi Vinstri grænna fyrir 2009 nam tap af rekstri flokksins tæpum 40 milljónum króna. Flokkurinn fékk rúma milljón í styrki frá 13 lögaðilum. Þetta kemur fram á vefsíðu Ríkisendurskoðunar. Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa ekki skilað ársreikningum til stofnunarinnar. Á síðasta ári var kosið til Alþingis. Hæstu styrkirnir sem Vinstri grænir fengu voru 300 þúsund krónur frá Icelandair Group og Högum, 200 þúsund krónur frá N1 og 100 þúsund krónur frá Miklatorgi hf. Félagsgjöld og framlög frá einstaklingum skiluðu flokknum rúmum 27 milljónum króna. Tap á rekstri Borgarahreyfingarinnar á síðasta ári nam 6,7 milljónum króna. Flokkurinn fékk 850 þúsund í fjárstyrki frá níu lögaðilum. Hæsti styrkurinn var frá Atlantsolíu eða 300 þúsund krónur. Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra skulu stjórnmálasamtök árlega skila Ríkisendurskoðun reikningum sínum sem í kjölfarið skal birta útdrátt úr þeim. Þar eiga að koma fram upplýsingar um heildartekjur og gjöld, uppruna tekna og helstu stærðir í efnahagsreikningi. Þá skal greina sérstaklega frá afsláttum sem viðkomandi samtök hafa fengið frá markaðsverði vöru eða þjónustu. Enn fremur skal birta nöfn allra lögaðila sem veitt hafa framlög til starfseminnar. Ríkisendurskoðun hefur nú í samræmi við fyrrnefnd lög birt hér á síðunni útdrátt úr reikningum Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar, Samtaka fullveldissinna og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs fyrir árið 2009. Eins og áður sagði hafa stofnuninni ekki enn borist reikningar frá Framsóknarflokknum, Frjálslynda flokknum, Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum. Útdráttur úr reikningum stjórnmálasamtaka sem enn eiga eftir að skila verður birtur jafnóðum og þeir berast og eftir að Ríkisendurskoðun hefur farið yfir þá.
Mest lesið Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Innlent „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Innlent Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Innlent Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Erlent Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Innlent Tína rusl til að komast á Reyki Innlent Rúta lenti utan vegar Innlent Trausti vill snúa aftur Innlent Fleiri fréttir Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Tína rusl til að komast á Reyki Trausti vill snúa aftur „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Rúta lenti utan vegar Ráðaleysi, viðvörun og hetjusaga Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Fékk Prins Póló: „Pabbi þetta er fyrir þig“ Enginn meðalmaður eða meðalkona til í alvörunni Maðurinn grunaður um manndráp á Kársnesi áfram í haldi Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Yfir hundrað þúsund gert kröfu: „Réttlæti skal ná fram að ganga“ Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Tæp sextíu prósent landsmanna vilja banna sjókvíaeldi Sjálfstæðisflokkurinn ekki í samkeppni og „alveg slök“ í Miðflokknum Einar fundar með borginni um málefni miðborgar Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Snjókomubakkinn nálgast borgina Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Býður sig fram í embætti varaformanns VG Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórnmálaflokka Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Sjá meira