Segir ráðherra sýna hnefann 17. desember 2010 06:00 Guðmundur Ármann Pétursson. Ekki ábyrgt af okkur að láta þá sem brotið hafa á íbúum Sólheima hafa allt um framtíð þeirra að segja, segir framkvæmdastjóri stofnunarinnar.
Óljóst er hvernig rekstur Sólheima í Grímsnesi verður frá áramótum. Fulltrúaráð stofnunarinnar veitti framkvæmdastjórn hennar heimild til að segja upp öllum samningum. Sú heimild hefur ekki verið nýtt. „Ég er að berjast fyrir því að alþingismenn taki tillit til Sólheima,“ segir Guðmundur Ármann Pétursson, framkvæmdastjóri sjálfseignarstofnunarinnar, sem vill ekki þurfa að sæta því að málefni hennar verði um áramótin felld undir sérstakt þjónusturáð þrettán sveitarfélaga á Suðurlandi og að hún þurfi að semja við sveitarfélagið Árborg um þjónustusamning. Frumvarp þess efnis bíður afgreiðslu á Alþingi. „Við viljum fá að semja beint við jöfnunarsjóð og að Sólheimar verði teknir út fyrir sviga þangað til 2014 þegar þessu tilraunatímabili lýkur,“ segir Guðmundur, sem treystir ekki á málsmeðferð sveitarfélaganna. „Sporin hræða,“ segir Guðmundur. „Þessi sama félagsþjónusta og á að hafa allt um Sólheima að segja er með sex stjórnsýsluúrskurði og dóm frá héraðsdómi á bakinu vegna þess að hún braut á fötluðu fólki sem hérna býr. Það væri ekki ábyrgt af okkar hálfu að láta þá aðila sem hafa endurtekið brotið á okkar fólki árum saman vera afgerandi um það hvernig staðurinn á að reka sig.“ Guðmundur kveðst ekki skilja hvers vegna ekki sé tekið tillit til Sólheima. „Ég geng fram fyrir ráðherra félagsmála æ ofan í æ og bið hann um að veita okkur og því fatlaða fólki sem hér er öryggi og tryggingu. Hann segir bara að það verði ekkert hvikað. Hann setur bara hnefann æ ofan í æ í borðið,“ segir hann. Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, segir sveitarfélagið þegar hafa unnið undirbúning að samningum við þrjá aðra þjónustaðila fatlaðra á starfssvæðinu. Fulltrúar Sólheima einir neiti að koma að borðinu. „Í sjálfu sér er mér ekki alveg ljóst hvert vandamálið er. Sveitarfélögin hafa unnið gríðarlega undirbúningsvinnu fyrir það að taka við þessum málaflokki,“ segir Ásta, sem kveðst hafna því að sveitarfélögin ráði ekki við verkefnið enda sé ríkið að treysta því að sveitarfélögin geti tekið við málaflokknum á landsvísu. Fulltrúaráð Sólheima telur óeðlilegt að Árborg sinni samningum við Sólheima vegna annarra verkefna sveitarfélagsins fyrir fatlaða. „Það eru engar hugmyndir, hvorki hjá sveitarfélaginu Árborg né þessu sameiginlega þjónustusvæði, um það að bregða fæti fyrir Sólheima eða á einhvern hátt að skerða þeirra möguleika,“ segir Ásta. Nú sé beðið eftir því hvort framkvæmdastjórn Sólheima nýti heimildina um uppsagnir samninga. „Sveitarfélögin þurfa þá að koma inn í það, að semja við einhvern annan eða taka reksturinn yfir. Ég er alveg klár á því að íbúum á Sólheimum verður tryggð þjónusta áfram, sama hvort framkvæmdastjórnin nýtir þessa heimild eða ekki,“ segir bæjarstjóri Árborgar. gar@frettabladid.is
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Fleiri fréttir Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Sjá meira