Góð reynsla af greiðslu bóta til fólks í skertu starfshlutfalli 8. desember 2010 09:06 Guðbjartur hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem lagt verður til að gildistími ákvæða til bráðabirgða lögum um atvinnuleysistryggingar verði framlengdur til 30. júní 2011.
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru í október 2010 samtals 1.903 einstaklingar sem skráðir voru á atvinnuleysisskrá í hlutastarfi eða í skertu starfshlutfalli. Þriðjungurinn voru karlar, 623, en tveir þriðju hlutar konur, 1.280. Þar af fengu 1.179 einstaklingar greiddar atvinnuleysisbætur vegna skerts starfshlutfalls á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða í lögum um atvinnuleysistryggingar. Alls voru 70% þeirra konur en 30% karlar. Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna, um hlutabætur í atvinnuleysi, sem lagt var fram á Alþingi í gær. Álfheiður spurði ennfremur hvert mat ráðherra væri af því að atvinnuleysisbætur væru greiddar samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Í svari Guðbjarts segir: „Ákvæðunum um hlutabætur í atvinnuleysi var ætlað að koma til móts við þær breytingar sem urðu á íslenskum vinnumarkaði í kjölfar efnahagsþrenginganna haustið 2008. Á þeim tíma hvatti forysta atvinnulífsins fyrirtæki sem áttu í tímabundnum rekstrarvanda til að skoða þann kost að skerða starfshlutfall starfsmanna sinna fremur en að grípa til uppsagna. Var ákvæðunum því ætlað að stuðla að því að fleiri héldu störfum en ella og að dregið yrði úr þeim áhrifum sem ákvarðanir vinnuveitenda um skerðingu starfshlutfalls kynnu að hafa á réttindi launafólks." Þá segir að ákvæðin hafi almennt þótt reynast vel og ekki síst sýnt ágæti sitt sem vinnumarkaðsúrræði þar sem starfsmenn eru áfram virkir á vinnumarkaði í að minnsta kosti 50% starfshlutfalli, í stað þess að missa hugsanlega vinnu sína að fullu. Guðbjartur bendir á að ákvæði til bráðabirgða í lögum um atvinnuleysistryggingar sem fjallar um rétt launafólks til atvinnuleysisbóta samhliða skertu starfshlutfalli hefur reynst konum betur en körlum en mun fleiri konur hafa nýtt sér þann rétt sem ákvæðið veitir. Ákvæði til bráðabirgða í lögum um atvinnuleysistryggingar fjallar um rétt sjálfstætt starfandi einstaklinga til atvinnuleysisbóta vegna verulegs samdráttar í rekstri þeirra reyndist þegar í upphafi nokkuð flókið í framkvæmd þar sem erfiðlega reyndist að meta samdrátt í rekstri sjálfstætt starfandi einstaklinga og hvað gæti talist tilfallandi verkefni, segir í svarinu. „Alþingi samþykkti því breytingar á ákvæðinu með lögum nr. 134/2008, um breytingu á lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, og lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, þannig að hver og einn sjálfstætt starfandi einstaklingur getur nú nýtt sér þetta úrræði í allt að þrjá mánuði samfellt í því skyni að bregðast við tímabundnum samdrætti í rekstrinum. Eftir þessa breytingu hefur ákvæðið reynst vel í framkvæmd," segir í svari Guðbjarts. Guðbjartur hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem lagt verður til að gildistími ákvæða til bráðabirgða lögum um atvinnuleysistryggingar verði framlengdur til 30. júní 2011. Í þeim tilgangi að ná fram markmiðum í ríkisfjármálum sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga 2011 er jafnframt gerð tillaga um að starfshlutfall launafólks verði að skerðast um 30% hið minnsta í stað 20% áður svo hlutaðeigandi geti átt rétt á hlutfallslegum greiðslum samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögunum.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira