Lánveiting í Búðarháls yrði jólagjöfin 12. desember 2010 21:21
Vonir eru bundnar við að Fjárfestingarbanki Evrópu muni í vikunni samþykkja að afgreiða lán til Landsvirkjunar vegna Búðarhálsvirkjunar í ljósi nýrrar stöðu í Icesave-málinu. Verkstjóri Ístaks á virkjunarsvæðinu segir að það yrði jólagjöfin í ár. Ef lánin komast í gegn má búast við starfsmannafjöldinn á Búðarhálsi fari fljótlega yfir eitthundrað manns enda eru þar hafnar 26 milljarða króna stórframkvæmdir. Vinnu er hins vegar haldið í lágmarki meðan lánamálin eru í óvissu og þannig voru bara sextán manns á svæðinu þegar fréttamenn Stöðvar 2 voru þar í síðustu viku. Fréttastofan hefur áður skýrt frá því að Fjárfestingabanki Evrópu hafi frestað að afgreiða lán með þeim óformlegu skilaboðum að þar á bæ vildu menn sjá framþróun í Icesave-deilunni. Stjórn bankans kemur saman í vikunni og hérlendis binda menn vonir við að þau samningslok, sem nú liggja fyrir í Icesave-málinu, nægi stjórn bankans til að afgreiða lánið og hún muni ekki bíða eftir lögfestingu Alþingis. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði í viðtali í fréttastofu að það væri mjög jákvætt að nýr Icesave-samningur lægi fyrir og það myndi liðka fyrir lánveitingu. Hann vildi þó engu spá um hvort stjórn Fjárfestingarbanka Evrópu myndi afgreiða málið í vikunni. Á Búðarhálsi spurðum við Benedikt Benediktsson, verkstjóra Ístaks, hvort Icesave væri lausnarorðið. Benedikt svarar að það sé altalað að aðgengi að fjármagni sé þungt vegna Icesave en kveðst vona að það verði jólagjöfin þeirra í ár að fá Búðarhálsinn á fulla ferð. Það vilji allir að Icesave leysist. Það verði að koma verkefnum af stað í landinu. Það hljóti allir að vilja.
Mest lesið Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Erlent Fullir í flugi Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Innlent Fleiri fréttir Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Sjá meira