Innlent

Máttu slátra lömbum í sendibíl

Sauðfé.
Sauðfé.

Hæstiréttur Íslands staðfesti sýknudóm yfir þremur einstaklingum sem voru ákærðir fyrir ólögmæta sauðfjárslátrun. Fólkinu var gefið að sök að hafa slátrað 19 lömbum í gám og í sendibíl á Vesturlandi í september á síðasta ári.

Ólöglegt er að slátra sauðfé utan löggilts sláturhúss.

Fólki neitaði hinsvegar að ætla að selja kjötið, heldur eingöngu neyta þess sjálf og voru þau því sýknuð bæði í héraði og Hæstarétti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×