Innlent

Þyrla sótti tvo alvarlega slasaða eftir bílslys

Stígur Helgason skrifar
Af vettvangi. Tvímenningunum sem mest slösuðust var haskað til Reykjavíkur þar sem þeir komust undir læknishendur.
Af vettvangi. Tvímenningunum sem mest slösuðust var haskað til Reykjavíkur þar sem þeir komust undir læknishendur. Guðmundur Karl
Slys Tveir voru fluttir mikið slasaðir með þyrlu á Landspítalann í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í gær eftir að smárúta með sex manns valt á Biskupstungnabraut, á milli Minni-Borgar og Svínavatns. Sá þriðji var fluttur rakleiðis með sjúkrabíl til Reykjavíkur og sá fjórði var fluttur til borgarinnar eftir skoðun á Heilsugæslustöðinni á Selfossi.

Í smárútunni voru kínverskir og bandarískir ferðamenn og svo virðist sem ökumaðurinn, kínversk kona, hafi misst stjórn á bílnum í beygju. Aðstæður til aksturs voru hinar bestu, vegurinn er malbikaður og var þurr þegar slysið varð.

Annar þeirra sem mest slasaðist skarst á slagæð og hinn hlaut höfuðáverka. Þeir voru ekki taldir í lífshættu í gær. Upphaflega var talið að þrír þyrftu að komast undir læknis­hendur í Reykjavík og voru hinir sendir á Heilsugæslustöðina á Selfossi. Þegar þangað var komið uppgötvuðust innvortis áverkar í kviðarholi eins þeirra og var hann þá í snarhasti sendur til Reykjavíkur.

Veginum var lokað fyrir umferð um skeið vegna slyssins og umferðinni beint um Sólheimaveg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×