Kostar á fimmta þúsund að nota smokk daglega Erla Hlynsdóttir skrifar 24. september 2010 10:33 Að meðaltali smitast sex manns daglega af klamydíu hér á landi. Smokkar geta spornað við útbreiðslunni.
Þrjú ungmenni undir 25 ára aldri smitast að meðaltali af klamydíu á degi hverjum hér á landi. Á sama tíma eru smokkar flokkaðir sem munaðarvara í hæsta skattþrepi. Íris Björg Jónsdóttir, skólahjúkrunarfræðingur hjá Menntaskólanum í Reykjavík, hefur áhyggjur af því hversu dýrar getnaðarvarnir eru. „Rannsóknir sýna að það er samdráttur í sölu getnaðarvarna," segir Íris. Ekki liggur fyrir hvort kreppan hefur þau áhrif að fólk kaupir síður getnaðarvarnir eða hvort skorti á fræðslu um getnaðarvarnir er þar um að kenna. Hver sem skýringin er þykir ljóst að þróunin er ekki í rétta átt. Íris Björg var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttur Í bítinu í morgun þar sem hún ræddi um getnaðarvarnir í tilefni þess að Alþjóða getnaðarvarnadagurinn er á sunnudag. Íris starfar einnig fyrir Tótalráðgjöf sem sér um alhliða ráðgjöf til ungs fólks, meðal annars á sviði kynferðismála. Getnaðarvarnir eru í hæsta skattþrepi þar sem greiddur er 25,5% virðisaukaskattur af þeim. Einn smokkur kostar um 150 krónur. Ef notaðir eru fjórir smokkar í viku kostar það því um 2400 krónur á mánuði. Sé einn smokkur notaður daglega að meðaltali fer kostnaðurinn upp í um 4500 á mánuði. Íris undrast að smokkar séu skattlagðir eins og munaðarvara á sama tíma og klamydíusmitum fjölgar. Á síðata ári smituðust um 1200 ungmenni undir 25 ára aldri af klamidíu, sem er algengasti kynsjúkdómurinn. Heildarfjöldi greindra smita, hjá öllum aldurshópum, var um 2300 á liðnu ári. Samkvæmt því greinast að meðaltali sex einstaklingar daglega með klamydíu. „Unga fólkið segir að því finnist smokkar of dýrir," segir Íris. Konur kvarta einnig undan því að hormónagetnaðarvarnir, svo sem pillan, hafi hækkað mjög í verði. Að mati Írisar er nauðsynlegt að ríkið niðurgreiði getnaðarvarnir. Einnig leggur hún áherslu á fræðslu um getnaðarvarnir, ekki aðeins til ungmenna heldur einnig til foreldra sem eiga börn á unglingsaldri.
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira