Fiskveiðiheimildir verða innkallaðar á 20 árum Heimir Már Pétursson skrifar 30. ágúst 2010 18:30
Starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða stefnir að því að ljúka störfum á fimmtudag og mun leggja til að fiskveiðiheimildir verði innkallaðar á 20 árum. Starfshópurinn var skipaður í júlí í fyrra á grundvelli stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar. Þar er kveðið á um svo kallaða fyrningarleið varðandi veiðiheimildir. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar stefnir starfshópurinn að því að ljúka störfum á fimmtudag og skila sjávarútvegsráðherra skýrslu þann dag eða á föstudag.Áhersla lögð á tvær leiðir Lagt verður til að veiðiheimildir verði innnkallaðar á 20 árum eins og kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Nefndin mun reifa nokkrar leiðir til endurúthlutunar veiðiheimildanna, en aðaláhersla mun vera lögð á tvær leiðir. Annars vegar svo kallaða tilboðsleið sem Jón Steinsson hagfræðingur útfærði fyrir nefndina, en þar er gert ráð fyrir að 8 prósent veiðiheimilda verði innkallaðar árlega og þeim endurúthlutað á tilboðsmarkaði. Hins vegar er svo kölluð samningaleið þar sem samið yrði um nýtingarrétt auðlindarinnar við einstakar útgerðir. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar munu tillögur nefndarinnar byggja á fjórum megin markmiðum. Að fiskistofnanrir séu eign þjóðarinnar og þeim sé ráðstafað af ríkinu. Ráðstöfunin gildi í tiltekin tíma og veiðiheimildunum deilt út eftir tilteknum reglum. Í þriðja lagi að gjald verði tekið fyrir nýtingarréttinn og að það gjald verði mun hærra en núverandi auðlindagjald. Og í fjórða lagi að nýtt kerfi tryggi jafna aðkomu allra að veiðiheimildunum og þar með verði opnað á aðkomu nýrra aðila að greininni.Skýrslan mikil að vöxtum Skýrsla starfshópsins er mikil að vöxtum eða um 300 blaðsíður. Það er síðan sjávarútvegsráðherra að ákveða um framhaldið, m.a. með skipan nefndar til að semja frumvarp um nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í vor, að ætla má að aðeins um 70 einstaklingar ráði yfir 70 prósentum af heildarkvótanum á Íslandsmiðum.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Sjá meira