Lá við stórslysi á Norðurlandsvegi 22. nóvember 2010 13:03
Minnstu munaði að fimm manns til viðbótar yrðu fyrir sama bílnum og ók á karl og konu á Norðurlandsvegi í Víðidal í Húnavatnssýslu í gærkvöldi. Hin slösuðu voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landsspítalan í Reykjavík og reyndust ekki eins alvarlega slösuð og óttast var í fyrstu. Atburðarrásin hófst með því að bíll á leið til Reykjavíkur, með fimm manns um borð, rann í flug hálku út af veginum. Tveir menn í næsta bíl komu til aðstoðar og náðu að draga bílinn upp á veginn aftur. Allir höfðu farið út úr báðum bílunum og var verið að gera upp tógið, þegar bíll nálgaðist á lítilli ferð. Skyndilega sást hvar annar bíll þeyttist fram úr honum og stefndi beint á allan hópinn. Tóku þá allir til fótanna í allar áttir og skall bíllinn aftan á bílnum, sem hafði verið dreginn upp, en hann kastaðist á ökumanninn, sem féll í götuna og slasaðist. Þaðan þeyttist aðkomubíllinn út fyrir veg og lenti þar á konu, sem var á flótta, ók hana niður og staðnæmdist, en þá var konan hálf undir bílnum. Læknir, sem var staddur á vettvangi, kallaði þegar eftir björgunarliði frá Blönduósi og Hvammstanga, og eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem flutti hin slösuðu á Landsspítalann í Reykjavík. Töluverðar umferðartafir urðu á meðan lögregla og björgunarmenn voru að athafna sig á staðnum , og segir vegfarandi, sem var á vettvangi, að bíllinn, sem olli öngþveitinu, hafi verið á lélegum dekkjum.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira