Engin stjórn á flugumferð yfir gosinu 26. mars 2010 05:30 Mikill áhugi er á jarðeldunum á Fimmvörðuhálsi og fjöldi flugvéla og þyrlna hefur verið í loftinu við gíginn í einu. fréttablaðið/anton
Mikill áhugi er á gosinu á Fimmvörðuhálsi og þeir sem hafa yfir loftförum að ráða leggja leið sína að gosinu. Stundum hefur mikið kraðak myndast í loftinu þegar tugir véla og þyrlna sveima kringum gíginn og einn flugmaður líkti því við villta vestrið. Engin stjórn er á flugleiðum einstakra flugvéla. Hörður Vignir Arilíusson, varðstjóri í flugstjórn, sagði í samtali við Fréttablaðið að engin stjórn væri á flugi einstakra véla undir ákveðinni hæð. Reglurnar eru þannig að þegar sjónflug er flogið tilkynna flugmenn sig þegar þeir fara í loftið og hvenær þeir áætla að lenda. Fylgst er með því hvort sú áætlun stenst, en að öðru leyti ráða flugmenn sjálfir leið sinni. Þetta á ekki við um alla flugvelli, sumir eru utan stjórnar, til dæmis flugvöllurinn í Þórsmörk. Hörður segir að mikil umferð sé fyrir austan, allt að tuttugu vélar séu stundum í loftinu í einu. Fjölmargir hafi nýtt sér góða veðrið í gær til að skoða eldgosið. Verði gott veður um helgina, eins og búast má við, megi reikna með mikilli umferð. Hörður segir enga árekstra hafa orðið; flugmenn séu upp til hópa skynsamir menn og fari varlega.- kóp
Mest lesið Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Erlent Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Innlent Byrjaðir að kenna hvor öðrum um stöðvun ríkisreksturs Erlent Fyrirgefur morðingjanum Erlent Í fyrsta sinn fleiri börn með offitu en í undirþyngd Erlent Fleiri fréttir Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Sjá meira