200 milljónir urðu að 129 þúsund krónum 8. desember 2010 03:15 Tannviðgerðir Tannlæknir á vegum landlæknis skoðaði tannviðgerðir sjúklinga mannsins árið 2006. Sá staðfesti fimm viðgerðanna sem nú er sagt að vanti.
Tannlæknir á Suðurnesjum hefur verið ákærður fyrir að svíkja rúmar 129 þúsund krónur út úr Tryggingastofnun (TR) með því að hafa rukkað fyrir tannviðgerðir sem hann ekki vann. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í fyrradag. Verjandi mannsins, Gestur Jónsson hrl., segir málatilbúnað undarlegan og hefur gert kröfu um að málinu verði vísað frá dómi. Þingfesting málsins á sér langan aðdraganda. TR kærði tannlækninn til lögreglu fyrir tryggingasvik árið 2006. Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum og var jafnvel talið, samkvæmt upplýsingum sem þeim voru veittar, að svikin næmu allt að 200 milljónum króna síðustu þrjátíu ár, uppreiknað til nóvember 2007. Samkvæmt ákærunni sem þingfest hefur verið er tannlækninum gefið að sök á hafa á árunum 2003 til 2006 svikið út rúmar 129 þúsund krónur vegna 34 tannviðgerða í ellefu einstaklingum. Sjúkratryggingar Íslands gera einkaréttarkröfu í málinu um að tannlækninum verði gert að endurgreiða mest ríflega 23 milljónir króna en minnst 129.412 krónur. Þá tóku forráðamenn Sjúkratrygginga Íslands þá ákvörðun fimm vikum áður en tannlækninum var birt ákæran að ekki yrði um að ræða frekari endurgreiðslur frá stofnuninni vegna tannlæknisverka hans. „Þessi 23 milljóna króna krafa er ekki studd neinum haldbærum rökum, heldur áætluð út í loftið.“ segir Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður, verjandi tannlæknisins. „Rannsóknin er búin að taka rúm fjögur ár og starfsmenn kæranda hafa opinberlega sakað tannlækninn um stórfelld fjársvik. Eftir öll þessi ár telur lögreglan, eftir að dómkvaddur sérfræðingur hafði skoðað umrædda sjúklinga, að ekki sé unnt að sjá merki um tannviðgerðir fyrir rúmar hundrað þúsund krónur. Alvarlegast er þó að ákæra er gefin út án þess að undir tannlækninn hafi verið bornir þeir reikningar sem haldið er fram að hann hafi framvísað ranglega. Hann telur sig hafa fullnægjandi skýringar á þeim öllum. Séu sakargiftir ekki bornar undir sakborning er mál ekki fullrannsakað og svo er í þessu tilviki.“ Gestur segir að tannlæknir á vegum landlæknis hafi skoðað tannviðgerðir sjúklinganna árið 2006. Sá hafi staðfest að minnsta kosti fimm viðgerðanna sem nú er sagt að vanti. „SÍ skrifuðu ráðherra bréf 4. nóvember þar sem sagt er frá því að búið sé að ákæra tannlækninn. Þar til í síðustu viku vissi hvorki ég né hann að ákæra hefði verið gefin út.“jss@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira