Móta þarf stefnu til að draga úr fátækt íslenskra barna 1. september 2010 19:32
Hátt í 700 manns sóttu um mataraðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp í dag. Breskur sérfræðingur í barnafátækt segir mikilvægt að stjórnvöld móti stefnu sem styður við börn sem búa í fátækt. Eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi tilheyrir fjölskyldu sem er undir lágtekjumörkum samkvæmt rannsóknum Hagstofunnar. Þær upplýsingar fengust hjá Mæðrastyrksnefnd nú seinnipartinn að 300 fjölskyldur hafi leitað þangað í dag. Um 360 sóttu aðstoð til Fjölskylduhjálparinnar. Er þetta talinn mikill fjöldi miðað við að nú er fyrsti dagur mánaðarins. Dr. Tess Ridge, einn helsti sérfræðingur Breta á sviði barnafátæktar er stödd hér á landi og átti í dag fund með starfsmönnum í félagsmálaráðuneytinu. „Rannsóknir sýna að börn hafa miklar áhyggjur af fjárráðum fjölskyldunnar, þau hafa áhyggjur af foreldrum sínum, þau hafa áhyggjur af að það sé ekki nóg til fyrir þau og að fjölskyldan hafi ekki næga peninga. Þau hafa áhyggjur af að geta ekki tekið þátt í ýmsu sem vinir þeirra og jafningjar geta. Þau hafa áhyggjur af lífi sínu almennt og börn fara leynt með slíkt. Þau hafa áhyggjur af að vera öðruvísi," segir Tess. Mikilvægt sé að stjórnvöld móti stefnu sem dragi úr barnafátækt og áhrifum hennar. „Það verður því að grípa til aðgerða til að styðja börnin sjálf, það þarf að tryggja að þau geti tekið þátt í hlutum og séu ekki útilokuð, að þau geti tekið þátt í því sama og önnur börn. Og svo eru ýmsar aðgerðir sem þurfa að miðast við að styðja foreldra þeirra, hvort sem þeir hafa vinnu eða ekki," segir Tess.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira