Misskilningur um kvennafrí hjá HÍ Erla Hlynsdóttir skrifar 26. október 2010 12:46 Fjöldi starfskvenna við HÍ mætti í miðbæinn í gær Mynd: Valli
Starfskonur við Háskóla Íslands sem lögðu niður störf í gær klukkan 14.25 þurfa ekki að vinna afgang vinnudagsins upp síðar. Ekki verður heldur dregið af launum þeirra sem stimpluðu sig út á þessum tíma. Misskilningur varð til þess að hluti starfskvenna HÍ stóð í trú um hið gagnstæða. Nokkur umræða var í gær á póstlista starfsmanna HÍ um að þær starfskonur sem ætluðu að taka þátt í kvennafrídeginn þyrftu að bæta tapaðan vinnutíma upp síðar og var fólk mjög undrandi á þessu fyrirkomulagi. Vefritið Smugan birti í morgun frétt þar sem vitnað var í Elvu Björk Einarsdóttur, verkefnisstjóra framhaldsnáms við hjúkrunarfræðideild skólans, sem segist hafa fengið þau skilaboð frá sínum yfirmanni að þær konur sem myndu stimpla sig út um hálf þrjú þyrftu síðar að vinna aukalega í hálfa aðra klukkustund. Vísir hafði samband við deildarstjóra hjúkrunarfræðideildar, Sunnu Guðrúnu Sigurðardóttur, sem sagðist hafa skilið starfsfólk starfsmannasviðs á þann veg fyrir helgina að þessi háttur yrði hafður á ef konur færu fyrrr úr vinnunni á kvennafrídaginn. Elísabet Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri á starfsmannasviði, segir í samtali við Vísi að þarna hafi verið um helberan misskilning að ræða. „Þetta stendur ekki til og stóð aldrei til," segir hún. Elísabet segist ekki átta sig á því hvernig misskilningurinn kom til en ítrekar að ekki verði dregið af launum þeirra kvenna sem stimpluðu sig út klukkan 14.25 og þær ekki krafðar um aukið vinnuframlag.
Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fleiri fréttir „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Sjá meira