Solla og Vala í sjónvarpiðdag 4. febrúar 2010 06:00 Sólveig Eiríksdóttir og Valgerður Matthíasdóttir verða saman í Íslandi í dag og munu töfra fram holla og fljótlega rétti fyrir alla. Fréttablaðið/Vilhelm
Valgerður Matthíasdóttir og Sólveig Eiríksdóttir verða með vikulega uppskrift í Fréttablaðinu á fimmtudögum. Sólveig sýnir síðan réttu handtökin sama kvöld í Íslandi í dag á Stöð 2. Völu Matt og Sollu þarf vart að kynna fyrir Íslendingum en saman hyggjast þær fræða Íslendinga um gómsæta og holla rétti sem allir ættu að geta gert á skjótan hátt. Hægt verður að sjá hvernig er rétt að bera sig að í sjónvarpsþættinum Ísland í dag og skoða upptökur inn á visir.is. Vala bendir á að Solla sé að verða nokkuð þekkt erlendis meðal hráfæðis- og heilsuspekúlanta enda hefur hún verið í samstarfi við einn þekktasta hráfæðiskokk Ameríku. „Já, ég hef unnið með Angelu Stokes, en hún er orðin hálfgerð goðsögn í Ameríku eftir að það kom viðtal við hana á fréttastöðinni CNN og milljónir manna horfðu á hana segja frá því hvernig hún létti sig um rúm 72 kíló, hvorki meira né minna, og breytti algerlega um lífsstíl,“ útskýrir Sólveig og bætir því við að Stokes hafi einnig bætt heilsu sína með því einu að breyta mataræðinu. „Hún neytti einungis hráfæðis og fannst það algjör snilld að hún gat borðað eins mikið og hún vildi, hvenær sem hún vildi en hélt svo á sama tíma alltaf alveg sinni kjörþyngd. Og svo rúsínan í pylsuendanum, húðin á henni varð silkimjúk og slétt og glans kom í hárið. Hún fékk roða í kinnar og varð bara eins og ný manneskja,“ útskýrir Sólveig. Vala segir fyrstu uppskriftina vera orkudrykk sem sé bæði ofboðslega góður og fljótlegur og alveg hrikalega flottur. „Þessi drykkur er eins og sælgæti á bragðið en á sama tíma hefur hann allt sem þú þarft úr morgunmat. Það er svo frábært að geta hent í hann hráefninu á nokkrum mínútum og drukkið svo á meðan verið er að gera sig til á morgnana,“ segir Sollu. Að sögn Sollu er grunnurinn að drykknum nokkuð breytilegur því það sé hægt að breyta hráefninu eftir því hvað til er í skápunum. „Best er að allt sé lífrænt, ég hef til dæmis sem grunn banana og haframúslí sem er algjört sælgæti með súkkulaðibitum (eða tröllahafra). Svo set ég döðlur, möndlur og smá lífrænt kakó og stundum smá kókosmjöl. Þetta set ég allt í blandara og helli köldu vatni út í. Fólk ræður svo hvað það vill hafa drykkinn þykkan og setur vatn eftir því. Svo er gott að setja nokkra klaka í lokin.“ Vala segist hafa heyrt ótrúlega margar reynslusögur þar sem fólk lýsir því hvernig það hefur hreinlega bjargað lífi sínu og stundum jafnvel læknast af ýmsum kvillum með breyttu mataræði. „Það er magnað hvað holl fæða getur verið mikið töframeðal, bæði sem forvörn og lækning og svo bara sem dúndur orkugjafi.“
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira