Strætó yfirgefur Hlemm 1. september 2010 06:00 Hlemmur heyrir sögunni til sem skipti- og endastöð Strætós verði tillögur fyrirtækisins að veruleika. Fréttablaðið/Pjetur
BSÍ tekur við hlutverki Hlemms sem skipti- og endastöð Strætós bs. verði hugmyndir fyrirtækisins að veruleika. Þá verður hætt akstri stórra strætisvagna um miðborg Reykjavíkur og við taka tíðari ferðir minni vagna. Einar Kristjánsson, sviðsstjóri þjónustusviðs Strætós, kynnti hugmyndir fyrirtækisins á fundi umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar í gær ásamt fulltrúa VSÓ ráðgjafar, en verkfræðistofan kannaði hagkvæmni þess að færa starfsemi Strætós við Hlemm á BSÍ. Einar segir tillögunum hafa verið fagnað á fundinum, enda séu þær í góðum samhljómi við nýja samgöngustefnu Reykjavíkurborgar þar sem unnið sé að því að gera miðborgina æ vistvænni. „Í umhverfis- og samgönguráði var líka fjallað um að gera Lækjargötu að sameiginlegu svæði, þar sem gatan verði lögð undir sameiginlega umferð gangandi, hjólandi og akandi, án gangstétta. Það var samþykkt að vinna áfram með þær tillögur og þá passar ákaflega illa að vera með tólf metra ferlíki akandi þarna um. Eins og er fara um miðbæinn rúmlega fjörutíu vagnar á klukkustund,“ segir Einar. Í tillögu Strætós er gert ráð fyrir átta nýjum miðbæjarvögnum sem aki á fimm mínútna fresti, fjórir í hvora átt. „Mjög líklegt er að vagnar verði betur nýttir en í núverandi skipulagi auk þess sem fjölga má vistvænum átta metra rafmagnsvögnum á hringleiðunum í Vesturbænum og á háskólasvæðinu,“ segir í glærum með kynningu fyrirtækisins í gær. Einar segir að verði hugmyndunum hrint í framkvæmd verði allt annað leiðakerfi en miðborgarinnar óbreytt. Af þessu sé hins vegar verulegur rekstrarlegur ávinningur, enda minnki dýr óþarfa akstur með fáa farþega. Enn hefur þó ekki verið samið við Kynnisferðir, eigendur BSÍ, um mögulega aðkomu Strætós, en lóðin er ekki í eigu borgarinnar. Hagkvæmnisskýrslunni var skilað í janúar og hugmyndirnar þá kynntar fyrir meirihlutanum í borginni. Afráðið var að bíða með ákvörðun um málið til að trufla ekki yfirvofandi sveitarstjórnarkosningar. - óká
Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira