Allar reglur brotnar við sölu Vestia Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. nóvember 2010 09:41 Guðlaugur Þór Þórðarson segir allar reglur hafa verið brotnar við sölu á Vestia. Mynd/ Stefán.
Allar verklagsreglur sem lagt var upp með við sölu eigna bankanna voru brotnar þegar að Landsbankinn seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Guðlaugur er málshefjandi í utandagskrárumræðum um málið sem fram fer á Alþingi í dag. Guðlaugur segir að Bankasýsla ríkisins, stofnun sem hefði átt að hafa eftirlit með að verklagsreglum væri framfylgt, hafi tekið þátt í að brjóta verklagsreglurnar. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er til andsvara við umræðurnar en Bankasýslan heyrir undir ráðuneyti hans. „Í ofanálag hefur komið fram að Landsbankinn er búinn að kaupa sig, í þessum viðskiptum, inn í Framtakssjóð lífeyrissjóðanna. Ég man ekki eftir því að það hafi verið tekin umræða um það. Þetta er spurning um að fá að vita það hver tók ákvörðun ef það yrði og hvort við sæjum eitthvað meira af því að ríkisbanki væri að fara inn á hlutverk lífeyrissjóðanna," segir Guðlaugur Þór. Guðlaugur bendir á að salan á Vestia hafi ekki verið framkvæmd. „Það væri eðlilegt að það væri farið eftir verklagsreglum og eðlilegast að ef menn vilja selja þessi fyrirtæki, sem er í sjálfu sér markmðið, að það sé gert eftir settum reglum," segir Guðlaugur Þór, aðspurður um það hvort að hann vilji að sölunni verði rift. Guðlaugur Þór segir mikilvægt að það sé ekki farið á skjön við markmið laga um bankasýsluna og að eigendastefnu ríkisins sé fylgt eftir.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Innlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Erlent Fleiri fréttir Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Alltaf til í slaginn en vonar að samningar haldi Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Rannsaka innbrot á veitingastað og þjófnað í skartgripaverslun Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Sjá meira