Taflmennirnir gætu verið grænlenskir Ingimar Karl Helgason skrifar 9. september 2010 13:23
Ekki er loku fyrir það skotið að taflmennirnir frá Ljóðhúsum í Suðureyjum, hafi verið búnir til á Grænlandi. Við greindum frá því í fréttum stöðvar 2 í gær, að Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, telur að um níutíu taflmenn úr rostungstönnum hafi verið gerðir hérlendis í kringum árið 1200. Þeir fundust á eynni Ljóðhúsum, undan ströndum Skotlands, árið 1831. Flestir þeirra eru geymdir í British museum og þykja hinar mestu gersemar. Flestir erlendir fræðimenn hafa hingað til talið að þeir hafi verið búnir til í Noregi, í Þrándheimi, nánar tiltekið, þar sem var erkibiskupsstóll. Lykillinn í kenningu Guðmundar er biskupinn, en í skák er orðið biskup hvergi notað um samnefndan taflmann nema hér, í færeyjum og á Bretlandseyjum. Guðmundur færir enn fremur rök að því að þessi notkun orðsins biskup, hafi borist úr íslensku í ensku. Þá bendir hann á að ólíklegt sé, miðað við stöðu biskups á skákborðinu, að erkibiskup í Þrándheimi hafi sett sig undir kóng og drottingu, en í öðrum norrænum málum og þýskur heitir hann hlaupari. En þær hugmyndir að taflmennirnir séu héðan eru ekki alveg nýjar af nálinni. Helgi Guðmundsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir í bók sinni Um Haf Innan, sem kom úr fyrir rúmum áratug, að taflmennirnir geti verið héðan, eða frá Grænlandi. Þar var byggð norrænna manna og þaðan voru fluttar rostungstennur og ýmis annar varningur, og sennilega einnig náhvalstennur, sem seldar hafa verið á Englandi og meginlandi Evrópu sem einhyrningshorn. Helgi bendir á að sérstakur litur, á svörtu taflmönnunum, en þessir menn eru raunar litaðir rauðum lit, virðist geta samsvarað sterkum rauðum lit sem notaður var til að lita rostungstennur af Grænlandi.
Tengdar fréttir Íslensk kona höfundur fyrsta biskupsins í skák „Íslandssagan er að breytast,“ segir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, sem telur að fornir taflmenn sem geymdir eru í breska þjóðminjasafninu, hafi verið skornir út hér á landi, úr rostungstönnum frá Grænlandi. Það muni breyta hugmyndum manna um íslenskar miðaldir. Guðmundur telur sig líka hver bjó mennina til. 8. september 2010 19:25 Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Erlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira
Íslensk kona höfundur fyrsta biskupsins í skák „Íslandssagan er að breytast,“ segir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, sem telur að fornir taflmenn sem geymdir eru í breska þjóðminjasafninu, hafi verið skornir út hér á landi, úr rostungstönnum frá Grænlandi. Það muni breyta hugmyndum manna um íslenskar miðaldir. Guðmundur telur sig líka hver bjó mennina til. 8. september 2010 19:25