Hálfur milljarður í fráveitu Bláa lónsins 3. september 2010 06:00 Bláa lónið flæðir yfir bakka sína. Annaðhvort verður fráveitulögn til að koma vatninu til sjávar lögð ofan jarðar eða grafin í jörðu. Framkvæmdin mun kosta um 500 milljónir króna. fréttablaðið/Anton
HS Orka þarf að fara út í um fimm hundruð milljóna króna framkvæmdir á næstu árum til að veita umframvökva úr Bláa lóninu til sjávar. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu er yfirborð lónsins orðið of hátt þar sem niðurfallsholur eru stíflaðar og flæðir jafnvel upp á veg á köflum. Lónið er í landi Grindavíkur, en Róbert Ragnarsson bæjarstjóri segir í samtali við Fréttablaðið að samkomulag hafi tekist við HS Orku um að bregðast við vandanum með tvennum hætti. „Annars vegar verður lögð lögn frá lóninu ofan í niðurdælingarholu sem er ofan í sprungu og á að leysa málið til næstu mánaða og ára. Endanlega lausnin er hins vegar sú að lögð verður fráveitulögn frá orkuverinu, vestur fyrir [fjallið] Þorbjörn, inn á iðnaðarsvæði sem er á skipulagi hjá okkur og þaðan til sjávar.“ Vegagerðin og heilbrigðiseftirlit eiga enn eftir að samþykkja þessar áætlanir, en Róbert segir að ef engar athugasemdir verði gerðar, megi gera ráð fyrir að tillagan verði samþykkt af bæjaryfirvöldum í Grindavík. HS Orka mun bera allan kostnað af framkvæmdum þar sem það er þeirra að sjá til þess að frárennsli sé viðunandi. Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri HS Orku, segir í samtali við Fréttablaðið að þessi útlát hafi vissulega áhrif. „En þetta veltir fyrirtækinu engan veginn. Langtímaframkvæmdin hefur hangið yfir okkur og við höfum gert áætlun sem fer núna fyrir næstu fjárhags- og framkvæmdaáætlun.“ Albert segir að framkvæmdin muni taka að minnsta kosti eitt ár þar sem ekki sé enn búið að taka ákvörðun um nákvæma útfærslu. „Ef við byrjuðum í dag yrði það ekki fyrr en einhvern tíma á árinu 2011 sem þessi varanlega lausn yrði komin í gagnið.“ Albert segir að um tvær útfærslur sé að ræða, annaðhvort verður lögnin grafin í jörð eða lögð ofanjarðar, en hann vonast til að þess að fyrir áramót verði til reiðu forhönnun á endanlegu mannvirki. Eins og kunnugt er, hefur staðið mikill styr um eignarhald á HS Orku, en Albert segist ekki hafa heyrt nokkuð um það hvort nýr eigandi, Magma Energy, hyggist gera kröfu á fyrri eigendur sökum þessara útgjalda, en hann eigi erfitt með að ímynda sér það. „Eigandinn veit af þessu en það hefur ekki eitt neikvætt orð fallið.“ Á næstunni verður gripið til bráðabirgðaaðgerða til að losa stíflur í niðurfallsholum. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Fleiri fréttir Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Sjá meira