Hamborgartréð kemur úr Borgarfirðinum í ár 23. nóvember 2010 16:00
Ljósin verða tendruð á jólatrénu á Miðbakka Reykjavíkurhafnar næstkomandi laugardag klukkan fimm. Tréð hefur í daglegu talið verið kallað „Hamborgartréð" í gegnum árin en nú kann að verða breyting á því. Í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum segir að jólatréð á hafnarbakkanum eigi sér langa og merka sögu því félagsskapurinn Wikingerrunde í Hamborg, Þýskalandi hafi í 44 ár sent jólatré til Reykjavíkurhafnar. „Trénu hafa fylgt góðir gestir frá Hamborg en tilefni þessarar gjafar er táknrænn þakklætisvottur til íslenskra togarasjómanna sem gáfu svöngu fólki mat í höfninni í Hamborg á fyrstu árunum eftir seinni heimsstyrjöldina." Hins vegar ber svo við að félagið hefur nú að mestu hætt starfsemi enda fækkað í hópnum og því var afráðið að senda ekki tré til Reykjavíkur að þessu sinni. Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, segir að þessu sinni komi tréð einfaldlega úr Borgarfirðinum. Það gefur þó að hans sögn þýskum frændum sínum lítið eftir og er hið glæsilegasta, tíu metrar á hæð. Þrátt fyrir þessa breytingu hafa stjórnendur Faxaflóahafna ákveðið að halda áfram þeirri venju að tendra ljósin á „Hamborgartrénu" á Miðbakka og bjóða viðskiptavinum og velunnurum að taka þátt í athöfninni. Hjálmar Sveinsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna, flytur ávarp við þetta tækifæri og sendiherra Þýskalands á Íslandi, Hermann J. Sausen, flytur kveðjur frá Hamborg. Þá mun Þýsk-íslenska viðskiptaráðið ásamt félögum í Germaniu taka þátt í að undirbúa þennan viðburð og fjölmenna við tréð. Faxaflóahafnir bjóða gestum síðan upp á heitt súkkulaði og jólabakkelsi í Hafnarhúsinu en við tréð syngur telpnakór jólasöngva. „Við hvetjum sem flesta til að koma á Miðbakkann og njóta stundarinnar en sérstaklega bjóðum við þeim sem á einhvern hátt tóku þátt í því að flytja fisk til Þýskalands á eftirstríðsárunum, og þá ekki síst togarasjómönnum," segir enn fremur í tilkynningunni.
Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Erlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Fleiri fréttir Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Sjá meira