Innlent

Eygló um ræðu Bjarna: „Lifi samtrygging stjórnmálamanna!"

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í Atla-nefndinni svokölluðu, fannst lítið til ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, koma þar sem Bjarni sagðist algjörlega mótfallinn þingsályktunartillögu um að kæra skuli fjóra ráðherra vegna vanrækstu í bankahruninu. Eygló er einn flutningsmanna tillögunnar.

Í upphafi máls síns sagði Eygló að það væri venjan að þakka fyrri þingmanni fyrir sína ræðu en hún væri ekki viss um að hún gæti það í þessu tilviki.

„Kjarninn í þessari ræðu var samtryggingin, lifi samtrygging stjórnmálamanna!; að valdi á ekki að fylgja ábyrgð heldur bara vald, sagði Eygló um ræðu Bjarna.

Hún tók þó undir með honum um að Landsdómur væri eins konar neyðarbremsa sem ætti aðeins að grípa til í ítrustu neyð þegar sannarlega væri illa komið fyrir þingræði landsins. Að mati Eyglóar er það einmitt staðan nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×