Innlent

Justin Bieber of ungur fyrir The Charlies - myndband

Stelpurnar í The Charlies voru í viðtali við þáttinn StarCam og er aðgengilegur á Youtube.com.
Stelpurnar í The Charlies voru í viðtali við þáttinn StarCam og er aðgengilegur á Youtube.com. Mynd/Skjáskot af Youtube
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að stúlknahljómsveitin The Charlies er flutt til Hollywood enda komin með samning hjá Hollywood Records. Í viðtali við þáttinn StarCam sem hefur verið birt á vefsíðunni Youtube segja þær frá helstu áhrifavöldum sínum í tónlistarbransanum.

„Við erum ný fluttar hingað og fengum samning hjá Hollywood Records. Við erum mjög spenntar að fara byrja að taka upp," sagði Alma í samtali við þáttinn. Þær segja að stjörnur á borð við Justin Bieber og Lady GaGa séu í miklu uppáhaldi. „Við elskum Justin Bieber," segja þær. Þær myndu þó ekki fara á stefnumót með honum. „Hann er aðeins of ungur."

Hægt er að sjá viðtalið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×