Yfirmenn lögreglunnar féllu á prófinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. ágúst 2010 11:39 Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélagsins, segir að fólkið sem réðst á Björgvin Björgvinsson sé varhugavert.
Ráðist var á Björgvin Björgvinsson, fyrrverandi yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, af miklu ofstæki eftir að hann tjáði sig um kynferðisbrotamál í DV á dögunum. Þetta segir Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands í pistli á Pressunni. „Lögreglumaðurinn var einungis að hvetja til þess að fólk forðaðist að setja sjálft sig í aðstöðu þar sem meiri hætta væri á að brotið yrði gegn því. Menn ættu að fagna slíkri hvatningu frá lögreglumanni sem áreiðanlega veit vel hvað hann er að tala um. Það er fjarstæða að telja hann hafa gefið í skyn að óábyrg hegðun fórnarlambs að þessu leyti réttlætti nauðgunina. Hann var aðeins að vara fólk við. Svona rétt eins og lögregla varar fasteignaeigendur við innbrotum í hús og hvetur þá til að setja upp öryggiskerfi. Í því felst auðvitað engin réttlæting fyrir innbrotum," segir Brynjar Níelsson í pistli sínum. Brynjar segir að fókið sem fari fram með ásakanir eins og Björgvin mátti þola sé varhugavert. „Það fer fram með hávaða og klisjur og leitar að tilefnum til að sýna mátt sinn og megin í umræðum samfélagsins. Það ræðst að mönnum fyrir að tjá skoðanir sínar og hikar ekki við að snúa út úr því sem sagt er ef það telur slíkt þjóna rétttrúnaðinum," segir Brynjar, sem telur að þetta fólk sé hættulegt tjáningarfrelsinu. Það bæli umræðurnar niður og nýti oft til þess fulltingis skynsnauðra fjölmiðlamanna sem éti vitleysuna upp. Þá segir Brynjar að yfirmenn lögreglunnar hafi fallið á þessu prófi. „Þeir eru lafhræddir við rétttrúnaðarfólkið og Björgvin var því fluttur til í starfi," segir Brynjar.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Birtu ekki baulið Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð Sjá meira