Mikilvægt að horfa til framtíðar 3. júní 2010 10:08 „Mörg ríkin fóru í gegn um fjármálakreppu á níunda áratugnum og eru með reynslu í farteskinu sem mikilvægt er að læra af,“ segir Jóhanna. Mynd/GVA
Á fundi leiðtoga aðildarríkja Eystrasaltsráðsins í gær voru efnahagsmál og styrking svæðisbundins samstarfs í forgrunni. Samþykkt var yfirlýsing af hálfu leiðtoganna um framtíðarsýn fyrir Eystrasaltssvæðið undir yfirskriftinni Vision 2020. Meginefni hennar er aukin samkeppnishæfni í svæðisbundnu samstarfi, á umhverfisvænum grunni og með félagsleg markmið að leiðarljósi. Leiðtogarnir lögðu áherslu á að þrátt fyrir að öll löndin glími nú við afleiðingar fjármálakreppunnar, meðal annars mikið atvinnuleysi og fjárlagahalla í flestum ríkjunum, væri mikilvægt að horfa til framtíðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. „Það er ljóst að við glímum við mjög samskonar vanda í mörgum aðildarríkjanna,“ er haft eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í tilkynningunni. „Viðbrögðin í öllum löndunum felast í auknu aðhaldi í ríkisfjármálum, verkefnum og aðgerðum til að draga úr atvinnuleysi og ekki síst að örva nýsköpun og viðskipti. Þetta getum við gert í svæðisbundnu samstarfi, í samstarfi okkar innan Evrópu og með sameiginlegum áherslum og regluverki sem styður og veitir aðhald. Mörg ríkin fóru í gegn um fjármálakreppu á níunda áratugnum og eru með reynslu í farteskinu sem mikilvægt er að læra af. Það er hins vegar ljóst að hvert ríki fyrir sig þarf að taka á sínum málum annars vegar heima fyrir og hins vegar með samstarfi á fjölþjóðlegum vettvangi,” segir Jóhanna.Fundaði með öðrum leiðtogum Eystrasaltsráðið hefur einnig beitt sér sérstaklega gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali. Samþykktu leiðtogarnir að framlengja verkefnið til ársins 2016. Jóhanna átti einnig fundi með öðrum leiðtogum um samstarf Íslands og einstakra ríkja um viðbrögð við alþjóðlegu efnahagskreppunni, aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og önnur málefni. Litháar hafa gegnt formennsku í Eystrasaltsráðinu undanfarið ár, en Noregur tekur við formennskunni næsta árið. Önnur aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Danmörk, Finnland, Eistland, Lettland, Pólland, Rússland, Svíþjóð og Þýskaland, auk þess sem framkvæmdastjórn ESB á sæti í ráðinu.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Innlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Fleiri fréttir Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram gert ráð fyrir að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“