Flugfélagið er sátt og ætlar að byggja sjálft 12. nóvember 2010 06:15 Flugfélag Íslands hyggst ráðast í endurbætur á húsakosti sínum við Reykjavíkurflugvöll í ljósi ákvörðunar yfirvalda um að ekkert verði af nýrri samgöngumiðstöð. „
Það er ánægjuefni að niðurstaða sé komin,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Borgarstjóri og samgönguráðherra hafa ákveðið að samgöngumiðstöð rísi ekki í Vatnsmýri. Rætt hefur verið um slíka framkvæmd í áratug og undirbúningur staðið í sex ár. Á meðan hefur Flugfélagið setið og beðið og farþegar þess mátt gera sér lúinn og þröngan húsakostinn við Reykjavíkurflugvöll að góðu. Sem dæmi um ástand mála var hluti af starfsemi félagsins rekinn í gámum síðastliðið sumar. Árni segir að þar sem yfirvöld hafi áformað byggingu samgöngumiðstöðvarinnar hafi ekki verið ráðist í kostnaðarsamar endurbætur á húsakynnum félagsins og þaðan af síður í nýbyggingu. Nú sé ný staða uppi. „Nú förum við í gegnum málið og ég sé fyrir mér bæði endurbætur á núverandi húsnæði og viðbyggingu,“ segir Árni. Einnig verði hugað að öðrum þáttum, líkt og malbikun bílastæðis sem ekki þótti borga sig að ráðast í vegna yfirvofandi flutninga í samgöngumiðstöðina. „Já, já, alveg hiklaust,“ svarar Árni spurður hvort aðrir flugrekendur fái inni í stærri og endurbættum húsakynnum Flugfélagsins. Í hönd fara viðræður við skipulagsyfirvöld um mögulegar framkvæmdir. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira