Heimsækir stríðshrjáð börn í Úganda 3. nóvember 2010 11:09 Gerður Kristný segist vera forvitin að sjá hvernig skólabörn í Norður-Úganda hafa það. Fréttablaðið/Anton
Gerður Kristný, rithöfundur og skáld, leggur af stað í ferðalag til Norður-Úganda í Afríku á laugardag. Hún slæst þar í för með starfsmönnum Barnaheilla - Save the Children á Íslandi sem eru með verkefni í landinu sem miðar að því að að auka skólaaðgang og bæta gæði menntunar yfir 30.000 barna í Pader-héraði fram til ársins 2011. „Við ætlum að heimsækja skóla þarna úti og sjá hvernig börnin hafa það. Síðan ætla ég að lesa upp úr barnabókum mínum, Mörtu smörtu fyrir eldri börnin en Jóladýrunum fyrir yngri börnin og sýna þeim myndirnar í henni eftir Brian Pilkington. Svo segi ég krökkunum aðeins frá börnunum á Íslandi," útskýrir Gerður og getur þess að hennar hlutverk verði auk þess að skrásetja það sem fyrir augu ber í ferðinni. „Ég ætla að halda úti bloggi á Eyjunni og mun setja inn nýjar færslur á hverjum degi. Fyrsta færslan birtist reyndar strax í gær." Mikil stríðsátök hafa verið í Norður-Úganda síðastaliðna tvo áratugi, sem hafa leitt til umtalsverðra hörmunga, mannfalls og eyðileggingar. Þúsundir manna eru eða hafa dvalið í flóttamannabúðum og hreinlætisaðstaða, heilbrigðisstarf og menntun er verulega ábótavant í landinu. Í Pader-héraði einu er til að mynda einn kennari fyrir hver rúmlega 100 börn og aðeins 30 prósent nemenda ljúka grunnnámi, eða 17 prósent stúlkna og 43 prósent drengja. Spurð hvort hún kvíði fyrir ferðinni, segist Gerður Kristný hafa litlar áhyggjur af eigin öryggi þar sem hún muni ferðast í hópi með þaulreyndu fólki, Jakobi Halldórssyni kvikmyndatökumanni og Petrínu Ásgeirsdóttur og Helga Ágústssyni, framkvæmdastjóra og formanni Barnaheilla - Save the Children á Íslandi. „Ég er fyrst og fremst forvitin að sjá hvernig börnin hafa það. Sjálf veit ég lítið um Norður-Úganda og þegar ég ætlaði að afla mér upplýsinga kom mér verulega á óvart hvað lítið er til af bókum um landið. Það er greinilega ekki mikil ástæða til að gefa út bækur um það fyrir ferðamenn." Þetta er í fyrsta skipti sem Gerður Kristný kemur til Afríku og kveðst hún því hlakka mikið til fararinnar. „Ég er ákaflega spennt, þar sem ég þekki marga sem ferðast hafa um álfuna og snúið aftur alveg heillaðir, haldnir eins konar Afríkusýki," segir hún og útilokar ekki að ferðin eigi eftir að veita sér innblástur við ritstörfin. „Ég þykist viss um að ferðin muni birtast með einhverjum hætti í verkum mínum í framtíðinni." Eins og áður sagði leggur hópurinn af stað á laugardag og snýr svo aftur heim til Íslands 14. nóvember. roald@frettabladid.is
Mest lesið Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Erlent Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Innlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Innlent Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Erlent Handtekinn í miðborginni fyrir brot á vopnalögum Innlent Standa fast á því að undirskriftin sé ekki Trumps Erlent Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Innlent Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Erlent Fleiri fréttir Með töskurnar fullar af marijúana Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Handtekinn í miðborginni fyrir brot á vopnalögum Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Útsending komin í lag Forseti biðlar til þingmanna og ólíkleg þátttaka í Eurovision Skipar ekki nýjan vararíkissaksóknara Teppa vegna minniháttar umferðarslyss á Kringlumýrarbraut Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Ríkisstjórnin sýnir á spilin og Alþingi sett í dag Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Gagnrýnir hæstu ríkisútgjöld sögunnar í fjárlagafrumvarpi Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Reyksprengju kastað inn á pall í Hafnarfirði Verið ættleiddur af Íslendingum Fyrsti dagur Kvikmyndaskólans: „Það besta sem hefur gerst fyrir skólann síðan í apríl“ Hækka hámarksgreiðslur um hundrað þúsund krónur Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Sjá meira