Segir Icelandic taka upp þvingunarkerfi 3. nóvember 2010 05:00 Icelandic Group hefur ákveðið að taka upp svonefnt MSC-vottunarkerfi fiskveiða. Íslenskt kerfi fyrir þorskveiðar verður tekið í gagnið síðar í mánuðinum. fréttablaðið/jón sigurður
Óánægju gætir hjá forvígismönnum samtaka í sjávarútvegi með ákvörðun Icelandic Group um að innleiða svonefnda MSC-vottun í þorsk- og ýsuveiðum við Ísland. MSC stendur fyrir Marine Stewardship Council sem er sjálfseignarstofnun sem heldur úti vottunarstaðli fyrir sjálfbærar fiskveiðar. Greiða þarf fyrir aðild að kerfinu. Icelandic Group tilkynnti um ákvörðun sína í lok síðasta mánuðar, mánuði áður en íslenskt vottunarkerfi fyrir þorskveiðar, undir merkinu Iceland Responsible Fisheries, verður tekið í notkun. Í framhaldinu á það að ná yfir veiðar fleiri tegunda. Unnið hefur verið að íslenska vottunarkerfinu undir forystu Fiskifélags Íslands með þátttöku stjórnvalda. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, er lítt hrifinn af MSC-kerfinu. Það sé þvingunarkerfi með óeðlilegum leikreglum. „Við teljum ófært að til þess að fá að eiga viðskipti með fisk séu menn þvingaðir til að borga þessum aðila lausnargjald. Það gengur ekki að einn aðili á alþjóðavísu ákveði hvort menn fái að selja ákveðnum aðilum fisk.“ Íslenskur sjávarútvegur verði að vera frjáls frá slíku fyrirkomulagi. „Við hefðum kosið að Icelandic hefði látið reyna á íslenska kerfið sem byggir á viðmiðum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Með því verður sýnt fram á að við stundum ábyrgar veiðar en því fylgir ekki svona lausnargjald.“ Friðrik kveðst ekki vita hvort þessi afstaða LÍÚ og fleiri aðila í sjávarútvegi torveldi hráefnisöflun Icelandic. Sambandið hafi ekki yfir félagsmönnum að segja. „Það eru vonbrigði að stjórnendur Icelandic Group hafi tekið þessa ákvörðun nú rétt áður en íslenska vottunarkerfið er innleitt og að þeir hafi ekki verið tilbúnir að sjá hvernig því myndi reiða af,“ segir Arnar. Hann kveðst þó skilja að þrýstingur kunni að hafa verið á fyrirtækinu sem sé fjölþjóðlegt. „Þarna ráða markaðslegar ástæður hjá stjórnendum en mín skoðun er að við eigum að standa saman um íslenska kerfið. Það hefur tekið of langan tíma að koma því á fót en nú sér fyrir endann á því.“ Aðspurður kveðst Arnar vona að MSC-vottun Icelandic hafi ekki neikvæð áhrif á íslenskan sjávarútveg. bjorn@frettabladid.is Friðrik J. Arngrímsson
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira