Hótaði strokuhænum lífláti 3. nóvember 2010 03:15 Hænurnar vissu ekki hversu alvarlegar afleiðingar flakkið í þeim hafði.
Lögreglustjórinn á Akureyri hefur höfðað opinbert mál fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra á hendur konu á sjötugsaldri fyrir að hafa látið hendur skipta vegna flökkugjarnra hænsna og ferða þeirra. Konunni, sem ákærð hefur verið, er gefin að sök líkamsárás og hótanir. Hún er sökuð um að hafa laugardaginn 29. maí 2010, í garði við Aðalstræti á Akureyri, hótað því að drepa hænur annarrar konu. Hænurnar höfðu strokið yfir í garð ákærðu konunnar. Henni er síðan gefið að sök að hafa ráðist að hænsnaeigandanum, slegið til hennar með neti sem hún var með til að fanga hænurnar, rifið bol sem hún var í, rifið í hár hennar og togað fast í og síðan slegið hana ítrekað í andlitið beggja megin. Afleiðingar árásarinnar fyrir hænsnaeigandann urðu þær að hún hlaut roða á vinstra eyra og sár og blóðtaum við hljóðhimnuna og eymsli á hálsinum vinstra megin. Hænsnaeigandinn sem er nokkru yngri en árásarkonan, eða á sextugsaldri, gerir bótakröfu á hendur henni upp á rúmlega 433 þúsund krónur. - jss
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira