„Við viljum auðvitað gleðja sem flesta“ Magnús Már Guðmundsson skrifar 3. nóvember 2010 10:30 Glöð börn á munaðarleysingjaheimili í Úkraínu með gjöf frá Íslandi. „
Hver einasti kassi skiptir máli og gleður eitt barn. Fyrir okkur sem höfum farið til Úkraínu og upplifað gleði barnanna skiptir það mestu máli, ekki endilega fjöldi kassanna þó við viljum auðvitað gleðja sem flesta," segir Björg Jónsdóttir, skipuleggjandi verkefnisins Jól í skókassa. Þeir sem vilja láta gott af sér leiða og taka þátt í verkefninu hafa tíma til næstkomandi laugardags. Einfaldar en gagnlegar gjafir Verkefnið Jól í skókassa snýst um að safna jólagjöfum handa börnum sem eiga um sárt að binda í Úkraínu. Hópur ungs fólks innan KFUM og KUFK hefur staðað að verkefninu á Íslandi undanfarin sex ár. Mikið atvinnuleysi er í Úkraínu og ástandið víða bágborið. Á svæðunum þar sem skókössunum er dreift er allt að 80% atvinnuleysi og fara gjafirnar meðal annars á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra foreldra. Björg segir að gjafirnar séu einfaldar en jafnframt fjölbreytilegar og gagnlegar fyrir börnin. Í kassana sem pakkaðir eru inn í jólapappír eru settir margvíslegir hlutir eins og leikföng, skriffæri, hreinlætisvörur, sælgæti og fatnaður. Ömmurnar klikka ekki Að sögn Bjargar hefur söfnunin í ár gengið afar vel. „Sérstaklega erum við þakklát fyrir fjölda sjálfboðaliða á landsbyggðinni sem hafa staðið fyrir skiladögum gjafa í sinni heimabyggð á undanförnum dögum. Einnig vitum við um fjölda einstaklinga, leikskóla og skóla sem eru að vinna verkefnið auk barna í deildarstarfi KFUM og KFUK. Þetta er þó ekki síður verkefni fyrir eldra fólk því gjarnan hafa borist heilu pokarnir með hlýjum fötum handa börnum í Úkraínu frá prjónandi ömmum." Í fyrra voru 3603 skókassar sendir út til Úkraínu en árið 2007 voru þeir um 5000. Björg segir erfitt að segja til um hversu margir kassarnir verði í ár. „Undanfarin ár hefur um helmingurinn borist á síðasta skiladeginum svo það er erfitt að giska á ákveðna tölu fyrirfram. Efnahagsástandið hefur sett sitt mark á verkefnið sem óx til ársins 2007 en þá söfnuðust flestir kassar eða um 5000, en fyrsta árið sem við unnum verkefnið bárust um 500." Fleiri stelpukassar Aðspurð hvort meira berist af gjafakössum fyrir stráka eða stelpur segir Björg: „Stelpurnar hafa haft vinningin undanfarin ár þó það muni ekki miklu. Mest berst í aldursflokkinn 5-9 ára en minnst í 15-18 ára aldurshópnum en hin eldri hafa ekki síður gaman að því að fá gjöf en hin yngri. Þau hafa gjarnan átt erfiða ævi og ekki endilega fengið jólagjöf áður." Síðasti skiladagur Síðasti skiladagur í Reykjavík er næstkomandi laugardag. Þann dag fer fram kynning á verkefninu frá kl. 11-16 í aðalstöðvum KFUM og KFUK á Holtavegi þar sem boðið verður upp á léttar veitingar. Þangað eru allir hjartanlega velkomnir, að sögn Bjargar. Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.Fulltrúar KFUM og KFUK heimsóttu Úkraínu í fyrra og afhentu á fjórða þúsund börnum jólagjafir.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira