ESA rannsakar stuðning ríkisins við Verne Holdings Valur Grettisson skrifar 3. nóvember 2010 14:49 Verne Holdings vill byggja gagnaver.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að hefja formlega rannsókn á stuðningi íslenska ríkisins og Reykjanesbæjar við fyrirtækið Verne Holdings ehf. í tengslum við byggingu gagnavers á Reykjanesi samkvæmt tilkynningu frá ESA. Þar segir að eftir forathugun málsins, hefur ESA efasemdir um að ríkisaðstoð sú sem felst í fyrirhuguðum undanþágum frá sköttum og gjöldum til ríkis og sveitarfélags samrýmist EES samningnum. Verne keypti í febrúar 2008 tvær vöruskemmur á fyrrum varnarsvæði bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli af íslenska ríkinu. Hóf fyrirtækið framkvæmdir við gagnaver sem það hyggst reisa þar í þremur áföngum og fyrirhugar að ljúka því verki 2016. Íslensk yfirvöld tilkynntu ESA hinn 1. september 2010 um að ríkið og Reykjanesbær hygðust veita Verne aðstoð til að byggja upp gagnaverið og vísuðu til undanþágureglna EES samningsins um byggðaaðstoð. Alþingi samþykkti í júní sem heimila íslenskum yfirvöldum að ganga til fjárfestingasamnings við Verne sem myndi undanþiggja félagið frá ýmsum sköttum og gjöldum. Þar sem Verne hóf byggingu gagnaversins án þess að íslensk yfirvöld hefðu skuldbundið sig til að veita byggðaaðstoðina, telur ESA að þörf sé á frekari upplýsingum til meta hvort aðstoðin sé nauðsynleg til að unnt sé að ljúka verkinu. Að auki mun ESA meta hvort ríkisaðstoð kunni að felast í nokkrum samningum sem Verne hefur þegar undirritað við ríkið og fyrirtæki þess; orkusölusamningi, kaupsamningi um fasteignir, lóðarleigusamningi og samningi um gagnaflutning. Þá þurfa Innlend yfirvöld að sýna fram á nauðsyn þess að veita ríkisaðstoð og að hún raski ekki samkeppni um of. Yfirvöld verða einnig að sýna fram á ríkisaðstoðin sé hæfileg til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt og að hún sé til þess fallin að ráða bót á byggðavanda. Ákvörðun um að hefja formlega rannsókn er tekin með fyrirvara um endanlega ákvörðun ESA, þar sem stofnunin gæti komist að þeirri niðurstöðu að ríkisaðstoðin sé í samræmi við EES-samninginn. ESA hefur kallað eftir athugasemdum og upplýsingum frá íslenskum yfirvöldum. Jafnframt kallar stofnunin eftir athugasemdum frá þeim aðilum sem telja sig eiga hagsmuna að gæta. Meðal eiganda Verne Holding er Björgólfur Thor Björgólfsson.
Mest lesið Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Fleiri fréttir Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum Sjá meira