Undrast áhugaleysi stjórnarandstöðunnar á samstarfi Sigríður Mogensen skrifar 3. nóvember 2010 18:54
Lítill áhugi stjórnarandstöðunnar á samstarfi í atvinnumálum kemur forsætisráðherra á óvart. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórn sem mistakist í mikilvægustu málunum eigi ekki langa lífdaga. Forystumenn ríkisstjórnarinnar boðuðu stjórnarandstöðuna á fund í dag en ríkisstjórnin vill víðtækt samráð um áætlun í atvinnuuppbyggingu. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að fundurinn hafi verið innihaldslaus. "Mér finnst í raun og veru óþægilegt að maður er bara kallaður að borðinu í málum þegar þau eru komin í þrot með lausn saman - þegar ekki er meirihluti fyrir því á stjórnarheimilinu" Formaður Sjálfstæðisflokksins segist ekki hafa fengið nein svör um afstöðu ríkisstjórnarinnar til viðamikilla mála. Sjálfstæðisflokkurinn sé nýbúinn að leggja fram viðamiklar tillögur í atvinnumálum. "Ég líka spyr mig, hvers vegna ættum við sem erum með skýra stefnu í atvinnumálum að fara að gera málamiðlum frá okkar hugmyndum til að koma til móts við ríkisstjórnin í vanda," sagði Bjarni Benediktsson eftir fundinn í dag. Hann segist ekki gera sérstaklega ráð fyrir áframhaldandi fundarhöldum um atvinnumálin. Bjarni segir að fjölga þurfi störfum, koma til móts við heimili í skuldavanda og taka á ríkisfjármálunum. „Ríkisstjórn sem mistekst að gera þetta þrennt á ekki langa lífdaga eftir," segir Bjarni. Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir að þetta hafi verið enn einn fundurinn þar sem ríkisstjórnin óski eftir samráði við stjórnarandstöðuna þegar hún sé komin í þrot. Það hafi verið gert varðandi skuldavanda heimilanna, í Icesave málinu og nú vegna atvinnumála. "Ríkisstjórnin treystir sér ekki til að fara áfram með atvinnumál án okkar og þá veltir maður fyrir sér framhaldinu. Er þá ekki rétt að kalla stjórnarandstöðuna að borðinu þannig að hér verði mynduð þjóðstjórn til að taka á þeim málum sem framundan eru," segir Gunnar Bragi. Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin sé ekki komin í þrot "Mér kom satt að segja á óvart að þau voru ekki tilbúin til þess að gefa vilyrði fyrir því að þau væru tilbúin að setjast að þessu borði. Það er ákall á að fleiri komi að borðinu og þess vegna erum við að kalla þau að borðinu." Forsætisráðherra segir ekki þörf á að mynda þjóðstjórn eins og staðan er núna. "Þetta er tilraun hvort hægt sé að ná breiðri samstöðu milli þessara aðila, ef það þarf að fara í það með þjóðstjórn - auðvitað munum við skoða það ef það þarf. En það þarf ekki að fara í þjóðstjórn vegna þess að ríkisstjórnin hafi ekki meirihluta, hún hefur meirihluta fyrir þeim málum sem hún vill koma í gegn," segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Erlent Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Erlent Fleiri fréttir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Sjá meira