Salmonellusýkt kjúklingafóður - sprenging í fjölda sýktra kjúklinga Erla Hlynsdóttir skrifar 29. nóvember 2010 11:29 Salmonellusmit hefur greinst í um fimm prósentum eldishópa á þessu ári, samanborið við 0,8 prósent árið þar á undan
Gríðarleg aukning hefur verið á salmonellusmitum í kjúklingi á þessu ári. Það sem af er árs hefur 21 sláturhópur verið innkallaður vegna rökstudds gruns um salmonellusmit, sem eru um þrjú og hálft prósent allra sláturhópa. Í liðinni viku innkölluðu bæði Reykjargarður og Matfugl kjúkling úr verslunum vegna salmonellu. Á árunum 2005 til 2007 komu engin salmonellusmit upp á íslenskum kjúklingabúum. Árið 2008 greindist síðan smit í um einu prósenti af eldishópum og var þeim því fargað. Árið þar á eftir greindist smit í 0,8 prósent eldishópa. Það má því líkja við að sprenging hafi orðið á þessu ári en eins og staðan er nú hefur salmonellusmit greinst í um fimm prósentum eldishópa. Erfitt er að segja til um með fullkominni vissu um orsakir þessara smita en samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun eru sterkar líkur á að hluti smitanna hafi komið til eftir að kjúklingunum var gefið salmonellusmitað fóður. Hráefnið í kjúklingafóður er almennt flutt hingað til lands óblandað og algengt að smit sé í hráefninu, að því er fram kemur hjá stofnuninni. Þegar fóðrið er blandað er það hins vegar hitað nægilega mikið til að drepa allt smit. Það er því síðar sem smitið kemur til, hvort sem það er við flutning fóðursins eða geymslu. Kjúklingabændur gera hvað þeir geta til að hindra útbreiðslu salmonellunnar en það reynist oft erfitt á stærri búum. Taka ber fram að smitaður kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir leiðbeiningum um eldun kjúklings, steiki í gegn og sjái til að blóðvökvi fari ekki í aðra vöru. Til skýringar skal tekið fram að eldishópur er hópur jafn gamalla alifugla sem er alinn í sama eldishúsi þar sem allir fuglar hafa aðgang að sama eldisrými. Sláturhópur er hins vegar eldishópur eða hluti af eldishópi sem er slátrað á sama degi.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira