Óttast metár í alnæmissmitum Valur Grettisson skrifar 25. október 2010 15:08 Gunnlaugur Grétarsson, formaður alnæmissamtakanna. „
Við hörmum þetta að sjálfsögðu en þetta hefur samt legið í loftinu," segir Gunnlaugur Grétarson, formaður Alnæmissamtaka Íslands, en óvanalega margir einstaklingar hafa sýkst af HIV á síðustu þremur mánuðum. Fram kom í farsóttafréttum í dag að ellefu manns hafa greinst með HIV smit frá því í byrjun ágúst hér á landi. Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, segir aukninguna í raun holskeflu. Gunnlaugur segir þróunina nú í takt við það sem er að gerast í öðrum löndum. Hann segir sprautufíkla til að mynda fyrirferðameiri varðandi þá sem sýkjast af veirunni banvænu en áður. „Þetta er líklega það sem við munum sjá í framtíðinni," segir Gunnlaugur en mest er aukningin á meðal fíkniefnaneytenda en einig eru innflytjendur frá löndum þar sem alnæmi er útbreitt töluverður hópur. Þá er einnig aukning í smitum á meðal samkynhneigðra. Gunnlaugur segir það vonbrigði, enda hafa samkynhneigðir hingað til verið best meðvitaðir um hættuna á alnæmissmiti. „Umræðan liggur dálítið niðri og það er kæruleysi víða," segir Gunnlaugur en það stefnir í metár í alnæmissmitum hér á landi. Nú hafa jafn margir smitast og árið 1985 þegar mest var, eða sextán einstaklingar. Spurður hvað sé til ráða segir hann margt hægt að gera. Gunnlaugur segir til að mynda mikilvægt að lækka verðið á smokkum og gagnrýnir harðlega háa skatta á þeim. „Þeir eru eiginlega bara orðnir munaðarvara," segir Gunnlaugur og bendir á að klamydíusmit hafi einnig aukist. Hann rekur þá þróun meðal annars til dýrra smokka. Gunnlaugur segir líka kominn tíma á að koma til móts við fíkla hér á landi. Það þurfi að auðvelda aðgengi þeirra að sprautunálum. Hann segir helsta fíkniefni sprautufíkla hér á landi vera rítalín. Þeir sem neyta þess þurfa bæði stærri sprautur og þurfa einnig að sprauta sig oftar en til að mynda heróín-fíklar. „Þar af leiðandi eru fleiri inngrip í líkamann sem fylgja fleiri sýkingar og svo framvegis," segir Gunnlaugur sem vill auðvelda aðgengi sprautufíkla að nálum. Gunnlaugur vonar að þessi þróun verði til þess að umræðan opnist frekar um málefnið. Hann segir vakningu nauðsynlega. Alnæmissamtökin eru með aðstöðu á Hverfisgötu 69. Þar er opið frá 12 til 16:00.
Tengdar fréttir Ellefu HIV smit á tæpum þremur mánuðum Ellefu manns hafa greinst með HIV smit frá því í byrjun ágúst hér á landi. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins sem birtar voru í dag en í byrjun ágúst höfðu fimm smitast. Sextán manns hafa því í allt smitast það sem af er ári og sóttvarnarlæknir talar um holskeflu síðustu vikur. 25. október 2010 13:16 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira
Ellefu HIV smit á tæpum þremur mánuðum Ellefu manns hafa greinst með HIV smit frá því í byrjun ágúst hér á landi. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins sem birtar voru í dag en í byrjun ágúst höfðu fimm smitast. Sextán manns hafa því í allt smitast það sem af er ári og sóttvarnarlæknir talar um holskeflu síðustu vikur. 25. október 2010 13:16