Lögreglan rannsakar saurmengun á Þingvöllum 23. ágúst 2010 18:30 Viðvörunarskilti sem sumarhúsaeigandi kom fyrir við losunarstaðinn.
Lögreglurannsókn er hafin á seyrulosunarmálinu á Þingvöllum. Sýnataka úr neysluvatni síðan á miðvikudag bendir ekki til að vatn sé mengað, þó óyggjandi niðurstöður liggi enn ekki fyrir. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hóf sýnatöku úr neysluvatni sumarhúsa á Þingvöllum eftir að upp komst um að Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands hefði losað skólpvatn úr rotþróm á vatnsverndarsvæði fyrir rúmri viku síðan. Annað mánudagssýnið reyndist ekki innihalda saurgerlamengun, heldur var gerlafjöldi yfir heilsufarsmörkum. Sýni tekið á sama stað á miðvikudag reyndist svo drykkjarhæft, segir Heilbrigðiseftirlitið. Hitt mánudagssýnið mældist hins vegar greinilega saurgerilmengað, en ekki voru tekin sýni á sama stað og það á miðvikudag. Heilbrigðiseftirlitið mun áfram fylgjast náið með neysluvatni á svæðinu og umfangsmeiri sýnataka er fyrirhuguð á morgun sem mun að öllum líkindum skila marktækari niðurstöðum. Þá hefur heilbrigðiseftirlitið kallað eftir magntölum frá fyrirtækinu, meðal annars til að kanna hvort það standist á sem dælt er upp úr rotþrónum og það sem er fargað með viðurkenndum hætti. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur nokkur fjöldi fólks haft samband við eftirlitið vegna óánægju með þjónustu fyrirtækisins. Heilbrigðiseftirlitið hefur ekki viljað skera endanlega úr um hvort vatnsmengunin sem mælst hefur stafi af athæfi fyrirtækisins, en búast má við niðurstöðum eftirlitsins fyrir vikulok. Sumarhúsaeigendur í Kárastaðalandi á Þingvöllum hafa kært fyrirtækið til lögreglu, en lögreglan í Árnessýslu segir rannsókn málsins vera í fullum gangi. Meðal annars hafi forsvarsmaður Stífluþjónustunnar verið kallaður til yfirheyrslu. Rannsókninni verður hraðað eins og auðið er, en búast má við að ákvörðun verði tekin um hvort ákæra verði gefin út á næstunni.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Sjá meira